Er Reykjavík höfuðborg allra landsmanna?
11. júní, 2020
Reykjavíkurflugvöllur. Mynd/Isavia

Flugvöllurinn í Vatnsmýri þjónar mikilvægu hlutverki sem miðstöð innanlandsflugs og sem slík skiptir staðsetning og umgjörð flugvallarins miklu máli. Enn mikilvægara er þó hlutverk flugvallarins sem miðstöð sjúkraflugs í landinu, en þar er um brýnt öryggismál landsmanna að ræða. Uppbygging á nýju bráða- og háskólasjúkrahúsi fer nú fram við Hringbraut. Það er lykilatriði að flugvöllurinn, þar sem sjúkraflugvélar lenda með bráðveika sjúklinga, sé staðsettur nálægt okkar sérhæfðustu bráðaheilbrigðisþjónustu á landinu. Sérstaklega þar sem nauðsynleg bráðaþjónusta er illu heilli sjaldnast í boði í heimabyggð á landsbyggðinni. Reykjavíkurborg er því að bregðast hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna þegar yfirlýst markmið hennar er að flytja innanlandsflugvöll okkar allra burt úr Vatnsmýrinni.
Aðför Reykjavíkurborgar að innanlandsflugi
Fyrirætlanir Reykjavíkurborgar um þvingandi aðgerðir gegn flugfélaginu Erni, sem hefur í áratugaraðir sinnt innanlandsflugi og sjúkraflugi með myndarbrag, eru með öllu óásættanlegar. Fyrirhugað var að taka viðhaldsstöð félagsins eignarnámi og rífa niður til að greiða fyrir veglagningu án þess að greiða bætur fyrir. Þegar fyrirtæki sem gegnir veigamiklu samgönguhlutverki á landsvísu stendur frammi fyrir einu erfiðasta rekstrarári í sögu fyrirtækisins lagði Reykjavíkurborg til enn frekari atlögu gegn starfsemi þess. Það ætti öllum að vera ljóst að Reykjavíkurflugvöllur hefur í gegnum tíðina verið ákveðinn þyrnir í augum Reykjavíkurborgar og kysi hún að flytja flugvöllinn annað enda landsvæðið í Vatnsmýrinni eftirsótt og verðmætt. Nýleg framkoma meirihlutans í borginni gagnvart flugrekstraraðila er hins vegar svívirðilegt skref að því markmiði.

Landsbyggðinni fórnað fyrir hag Reykjavíkurborgar

Hugmyndir um flutning Reykjavíkurflugvallar voru raunhæfar á sama tíma og staðsetning nýs Landspítala var óráðin. Bráða-, skurð- og fæðingarþjónusta hefur víða um land verið skert eða lögð niður í hagræðingarskyni eða undir því yfirskyni að sérhæfða bráðaþjónustu beri að veita þar sem helstu sérfræðingar landsins eru að störfum. Það er því grunnforsenda að miðstöð innanlandsflugs sé í seilingarfjarlægð frá slíkri sérhæfðri bráðaþjónustu svo að allir Íslendingar eigi kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita líkt og lög kveða á um. Í bráðatilfellum er ljóst að hver mínúta skiptir máli og vegalengdir milli innanlandsflugvallar og bráðasjúkrahúss eru lífspursmál. Það er óumflýjanleg staðreynd sama hversu óþægileg andstæðingum flugvallarins í Vatnsmýri þykir hún. Þegar skóflustunga var tekin í lok ársins 2018 og uppbygging hófst á nýju þjóðarsjúkrahúsi Landspítalans var nauðsyn staðsetningar innanlandsflugvallar í Vatnsmýri fest í sessi. Að öðrum kosti væri verið að fórna heilsu og öryggi íbúa og ferðamanna á landsbyggðinni.

Sterk landsbyggð er allra hagur

,,Þið veljið að búa þarna” eru kjörorð þeirra sem hafa takmarkaða þekkingu á mikilvægi sterkrar landsbyggðar. Mikilvægi dreifðar búsetu um víðfeðmt landið hefur sjaldan verið jafn augljóst og einmitt við þær krefjandi aðstæður sem við stöndum frammi fyrir í dag. Með frekari þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu og fjölgun íbúa stendur borgin frammi fyrir vaxandi samgönguvandamálum. Jafnframt eykst samkeppni um störf á höfuðborgarsvæðinu, um grunnþjónustu á borð við leikskólapláss, heilbrigðisþjónustu eða hreinlega að komast á kassa síðdegis á föstudegi í næstu kjörbúð. Það má leiða líkum að því að lokun á Hreiðrinu, fæðingarþjónustu við Landspítalann, hafi t.a.m. orðið í beinu samhengi vegna vaxandi álags á fæðingardeild Landspítalans í kjölfar skertrar fæðingarþjónustu við landsbyggðina. Samkvæmt ársskýrslum Landlæknisembættisins um barnsfæðingar hefur fæðingum á fæðingarstöðum á landsbyggðinni fækkað um 30% á undanförnum áratug. Það að skera niður þjónustu á landsbyggðinni þýðir nefnilega ekki að þörfin á þjónustunni hverfi.

Skorum á Reykjavíkurborg að láta sér annt um hagsmuni landsbyggðar

Undirritaðir kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins úr öllum landsfjórðungum skora á meirihluta Reykjavíkurborgar að láta af fyrirætlunum sínum á flugvallarsvæðinu sem munu þrengja enn frekar að starfsemi flugvallarins í Vatnsmýrinni. Við skorum á Reykjavíkurborg að tryggja óskerta starfsemi flugvallarins, fagna mikilvægu hlutverki hans sem miðstöð innanlands- og sjúkraflugs og styrkja uppbyggingu hans með ráðum og dáð í stað þess að leggja í sífellu steina í götu hans. Við skorum jafnframt á Reykjavíkurborg að axla ábyrgð sína sem höfuðborg allra landsmanna. Það hlýtur að vera sameiginlegt hagsmunamál allra, ríkis og sveitarfélaga, að tryggja öruggar samgöngur til höfuðborgarinnar, auka ferðafrelsi en um leið tryggja jafnan rétt Íslendinga að bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Saman getum við meira.

Berglind Harpa Svavarsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Fljótsdalshéraði
Hafdís Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum
Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norð-austurkjördæmi

Birtist í Morgunblaðinu 10. júní 2020

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst