Eyjakonan Erna Ingólfsdóttir sem heldur úti
Facebook-síðu og stendur fyrir undirskriftasöfnun þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að hafa afskipti af barnaverndarmálum í Noregi kveðst vita af 25 íslenskum fjölskyldum sem hafa misst börnin sín til barnaverndar í Noregi.
Visir.is greindi frá
Alls er um að ræða á milli 60 og 70 íslensk börn að sögn Ernu en rætt var við hana í Reykjavík síðdegis í dag. �?á segir Erna jafnframt að hún telji norsk barnaverndaryfirvöld hafa fjárhagslegan ávinning af því að ná til sín sem flestum börnum.
Vísir hefur undanfarið fjallað ítarlega um mál íslensks drengs sem senda á héðan til Noregs að kröfu norskra barnaverndaryfirvalda. Málið hefur vakið mikla athygli og hafa þingmenn meðal annars gert það á umtalsefni á Alþingi og hvatt innanríkisráðherra til að beita sér í málinu.
Málið sem Erna tengist kom upp árið 2013 en þá voru börn bróður hennar voru tekin af honum árið 2013 af norskum barnaverndaryfirvöldum. Var Erna ein þeirra sem stóð fyrir mótmælum gegn starfsháttum barnaverndar á Íslandi í vor en þá var norskum barnaverndaryfirvöldum mótmælt víða um heim.
�??�?að sem við stefnum á er að íslensk stjórnvöld viðurkenni þennan vanda sem er þarna úti sem er gríðarlega mikill og mörg lönd eru búin að senda formlega kvörtun til Noregs varðandi það hvernig farið er með þeirra þegna. Við erum að berjast fyrir að íslensk stjórnvöld geri það sama. Maður þarf eiginlega að krefjast þess því hlutirnir hafa gengið svo langt að það er eiginlega ekki hægt að lýsa því ,�?? segir Erna.
Aðspurð hvort hægt væri að gera sér einhverja grein fyrir því af hverju þessi að því er virðist óbilgirni norskra barnaverndaryfirvald og hvort verið geti að þau hafi einhvern fjárhagslegan ávinning af því að taka til sín sem flest börn segir Erna:
�??Sjálfsagt hefur barnaverndarnefnd verið í upphafi eins og alls staðar annars staðar en í dag er þetta orðin mikil peningaspilling. �?að eru einkarekin fósturheimili úti sem að hafa mikla peninga upp úr þessu og að þetta skuli þrífast í landi eins og Noregi skilur maður engan veginn. �?á hafa fósturforeldrar mjög gott upp úr því að hætta að vinna og gerast fósturforeldrar en þeir geta verið með 600-700 þúsund tekjur á mánuði plús alls konar aukabónusa. �?að er orðin gríðarleg spilling í þessu kerfi, það er ekki hægt að segja það á neinn annan hátt.�??