Eyjar.net var á undan bæjarráði með skoðanakönnun
Í kjölfar umræðu í bæjarráði um stöðuna í samgöngum Vestmannaeyja í vikunni var ákveðið að fela bæjarstjóra að láta þegar vinna vandaða skoðanakönnun meðal bæjarbúa þar sem m.a. verður kallað eftir áliti þeirra á samgöngum á sjó og hverjir framtíðarmöguleikarnir eru.
�?að má segja að Eyjar.net hafi stolið í glæpnum því í dag hafa þeir birt niðurstöður skoðanakönnunar sem MMR vann fyrir Eyjar.net. Spurt var nokkurra spurninga og sú fyrsta var hvort fólk væri í heildina ánægt eða óánægt með núverandi fyrirkomulag samgangna á sjó milli lands og Eyja. Hringt var í 500 íbúa Vestmannaeyja og var svarhlutfall 63,6%. framtíðarmöguleikum.
Niðurstaða könnunarinnar er að 88 prósent Eyjamenn eru óánægðir eða frekar óánægðir með núverandi fyrirkomulag.
Spurning númer tvö var hvort Eyjamenn telji að Herjólfur anni fólksflutningum illa eða frekar illla. �?ar kemur fram að 55 prósent bæjarbúa telja að Herjólfur anni fólksflutningum mjög illa eða frekar illa. Boðað er að á morgun verði frekar sagt frá könnuninni.

Nýjustu fréttir

Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.