Gular viðvaranir allvíða - Suðaustanhríð á Suðurlandi
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna veðurs fyrir eftirtalin svæði: Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Austfirðir, Suðausturland, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra.

Á Suðurlandi tekir viðvörunin gildi á morgun, laugardag kl. 18:00 og gildir til kl. 23:00. Í viðvörunartexta segir: Suðaustan 15-23 m/s og snjókoma eða skafrenningur, einkum á Hellisheiði og í Þrengslum. Hvassast við fjöll með vindhviður að 35 m/s þar. Samgöngutruflanir líklegar.

Hugleiðingar veðurfræðings

Lægð fyrir austan land veldur allhvassri eða hvassri norðanátt með snjókomu á Norður- og Austurlandi í kvöld, en stormi eða roki um tíma suðaustantil. Lægðin fer austur, það lægir og léttir til í nótt og fyrramálið, fyrst vestanlands. Kalt í veðri

En á morgun nálgast næsta lægð úr suðvestri með vaxandi suðaustanátt og það fer að snjóa á suðvesturhorninu síðdegis. Suðaustan 18-25 m/s og snjókoma eða slydda annað kvöld, en rigning syðst. Hægari vindur norðaustanlands og dálítil snjókoma þar. Heldur hlýnandi.

Á sunnudag er útlit fyrir mun skaplegra veður, allvíða él en lengst af snjókomu á Norðausturlandi.
Spá gerð: 27.03.2026 15:34. Gildir til: 29.03.2026 00:00.

Nánar um veðrið.

Nýjustu fréttir

Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Fótboltamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson er íþróttamaður mánaðarins
Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust
Myndlistargyðjan var alltaf í fyrsta sæti
Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.