Kvennalið ÍBV lék í kvöld gegn Fjölni í B-riðli 1. deildar kvenna en leikurinn fór fram við frekar erfiðar aðstæður á Hásteinsvellinum. Völlurinn sem slíkur var ekki slæmur heldur veðrið, því á meðan leik stóð var sterkur vindur á annað markið og auk þess rigning lengst af. Eyjastúlkur léku gegn vindinum í fyrri hálfleik en voru engu að síður yfir 1:0 í leikhléi. Með sigrinum tryggðu Eyjastúlkur sér sæti í úrslitum 1. deildar en nú munar 14 stigum á ÍBV og ÍR, sem er í þriðja sæti en ÍR getur mest náð í 9 stig í viðbót.