Á fundi Fjölskyldu- og tómstundaráð í vikunni, lá fyrir erindi frá Fimleikafélaginu Rán, um afnot af sal í Týsheimilinu fyrir æfingar iðkenda sinna. Ráðið hafnaði erindinu þar sem þær kröfur sem Fimleikafélagið Rán setur auka rekstrarkostnað Vestmannaeyjabæjar, umfram það sem fjárhagsáætlun 2013 leyfir. Að auki mun beiðni Fimleikafélagsins Ránar hamla öðrum aðilum notkun á Týsheimilinu.