Landeyjahöfn opnaði í gær og siglir Herjólfur nú sjö ferðir á dag til hafnarinnar. Strætó er með tvær rútuferðir á dag til Landeyjahafnar en hvorug ferðir samræmist siglingartíma Herjólfs og verður það þannig þar til sumaráætlun Strætó tekur gildi.
Breytingin á tímatöflu Herjólfs kom leiðakerfi Strætó í opna skjöldu sagði Guðmundur Heiðar Helgason upplýsingafulltrúi Strætó þegar Eyjafréttir höfðu samband og sagði hann að þeir hefðu fengið afar lítinn fyrirvara.
Breytist í lok maí
„Það er flókið mál að breyta leiðakerfinu og margt sem þarf að huga að. Þessi breyting hjá Herjólfi hefur áhrif á allt leiðakerfi Strætó á Suðurlandi. Við erum að vinna hörðum höndum með SASS að setja saman nýjar áætlanir og þær munu ekki breytast fyrr en 26. maí, þegar sumaráætlun Strætó tekur gildi,“ sagði Guðmundur Heiðar.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.