Tónlist ómaði um allan Tónlistarskólann á laugardaginn þegar fagnað var degi tónlistarskóla á landinu. Í einu herbergi var ungur maður að lemja trommur, Skólalúðrasveitin lék í salnum á neðstu hæðinni og upp um alla ganga var leikið á hljóðfæri af öllum gerðum og sungið. Vakti kannski mesta athygli að heyra nýjan söngkennara, �?órhall Barðason, spreyta sig á snilldarverki Davids Bowies, Space Oddity. En allt var þetta skemmtilegt og vitnar um kraftmikið starf í skólanum sem þrátt fyrir það hefur mátt horfa upp á fækkun nemenda.
�??�?að er mikill kraftur í starfinu hjá okkur og það er ekki bara að krakkarnir séu að leika ein og sér. Skólalúðrasveitin hefur lengi starfað, við erum með brasskvintett og það er talsvert um samspil í herbergi sem við höfum útbúið sérstaklega. �?ar er gítar, bassi og trommur, draumaaðstaða fyrir unglingana sem vilja prófa að vera í hljómsveit,�?? sagði Jarl Sigurgeirsson, aðstoðarskólastjóri, í samtali við Eyjafréttir.
Valinn maður í hverju rúmi
Skólinn býður upp á öflugt lið kennara. �??�?ar er valinn maður í hverju rúmi og erum við afskaplega ánægð með samsetninguna núna. Nú nýverið tók til starfa hjá okkur �?órhallur Barðason söngkennari sem kom í stað Sólveigar. �?að er ekki hlaupið að því að fá gott fólk með stuttum fyrirvara, en þar var lukkan svo sannarlega með okkur í liði. �?á eru hjónin Kitty og Balázs að kenna hjá okkur. Hún á píanó og hann á fiðlu. �?ar erum við með fólk sem er í fremstu röð tónlistarmanna á Íslandi á sínu sviði. �?að er mikill fengur fyrir skólann að geta státað af slíkum starfsmönnum og ætti fólk ekki að hika við að nýta sér tækifærin sem í því felast. Gjarnan vildum við bæta við kennurum og vonumst til að það verði raunin með auknum fjölda nemenda í framtíðinni.�??
Til Barcelona
�??�?að skráðu sig nokkrir nemendur á laugardaginn en við getum bætt við við fleirum, sérstaklega á blásturshljóðfæri. Samfara fækkun hefur skapast aukið svigrúm til alls kyns samspilsverkefna og hefur það skilað sér í líflegra skólastarfi. Skólasveitin okkar hefur starfað frá árinu 1978. Við höfum spilað nokkuð reglulega og í sumar er stefnan tekin á Barcelona á Spáni þar sem sveitin kemur fram á tónlistarhátíð.�??
Jarl er ánægður með hvernig til tókst á laugardaginn en það er nýlunda að halda upp á Dag tónlistarskólanna í sjálfum skólanum. �??Dagurinn er til þess að vekja athygli á starfi tónlistarskólanna og gera starfið sýnilegra. Við höfum undanfarin ár á þessum degi, verið í Akóges með nemendatónleika, en núna vildum við fá fólkið til okkar og upplifa það sem hér fer fram. �?að kom fullt af fólki og nokkrir sem skráðu sig í skólann en við viljum endilega fá fleiri,�?? segir Jarl og segir þeirra fólk koma víða fram.