Fiskirí og slippferð
bergey_opf
Myndin er tekin um borð í Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE hafa aflað vel að undanförnu. Bergur kom til heimahafnar í Eyjum með fullfermi aðfaranótt sunnudags og Vestmannaey kom í kjölfar hans einnig með fullfermi. Í viðtali við vef Síldarvinnslunnar segir Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, að hann hafi verið sáttur við túrinn.

„Við byrjuðum á Víkinni en flúðum þaðan vegna veðurs austur á Ingólfshöfða og kláruðum þar. Það var suðvestan bræla allan túrinn en veiðin var fín. Það var mest þorskur og ýsa sem fékkst að þessu sinni. Að löndun lokinni verður haldið til Akureyrar þar sem farið verður í slipp. Það er hellingsdæmi að halda við skipunum og þetta mun taka um það bil mánuð hjá okkur. Það verður farið í vélarupptekt og síðan verður skipið málað og gert virkilega fínt. Ég held að menn verði bara glaðir að fá gott frí á meðan skipið verður í klössun og við munum væntanlega ekki halda til veiða á ný fyrr en um miðjan júnímánuð,” sagði Jón.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey lét vel af veiðiferðinni. „Við tókum eina sköfu á Víkinni en héldum síðan á Ingólfshöfðann og þar var fengið í skipið. Aflinn var mest ýsa en það var aðeins þorskur og koli með,¨sagði Egill Guðni.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.