Fjölmenni var á jólamarkaði í Gónhól á Eyrarbakka um helgina.
Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir söng þar með sinni engilblíðu og fallegu rödd og kynnti nýjan hljómdisk. Undirleikari var eiginmaður hennar Vignir Stefánsson.
Eyrbekkingar fögnuðu þeim sérlega vel enda er Guðlaug Dröfn Eyrbekkingur að hálfu; dóttir Sigurjónu Sverrisdóttur á Eyrarbakka og Ólafs Þórarinssonar, Labba í Glóru sem svo er oftast nefndur.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst