Með viljann að vopni

Séra Kristján bauð ÍBV liðinu í kirkju daginn fyrir leik og gaf þeim andlega næringu. Sú orka leystist úr læðingi í leiknum gegn Aftureldingu í dag. ÍBV strákarnir léku með hjartanu gegn Aftureldingu í dag. Þrátt fyrir hvert áfallið á fætur öðru að undanförnu gáfu strákarnir ekki upp vonina. Samheldi, gleði og barátta var einkennandi […]

Vona að sátt hafi náðst um rekstur Vinnslustöðvarinnar

Guðmundur og Hjálmar Kristjánssynir segjast vona, að með kaupréttarsamningi við heimamenn í Vestmannaeyjum um sölu á tæplega þriðungshlut bræðranna í Vinnslustöðinni til Ísfélagsins náist sátt um framtíðarrekstur Vinnslustöðvarinnar. Tilkynning bræðranna er eftirfarandi: „Við bræður eignuðumst hlut í félaginu árið 2002. Forsenda okkar fyrir aðkomu að félaginu var að félagið væri skráð í Kauphöll. Frá þeim […]

Trotsenko hristi af sér sjóriðuna í fyrsta sigri ÍBV

ÍBV fagnaði sínum fyrsta sigri á leiktíðinni í dag í N1-deildinni í handknattleik karla með því að leggja Aftureldingu, 24:23, á heimavelli í Vestmannaeyjum. Mosfellingar voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 13:9 en heimamenn náðu að snúa leiknum sér í hag í síðari hálfleik. Það var þungu fargi létt af leikmönnum ÍBV í leikslok í […]

Ákvörðun um hlutahafafund tekin í næstu viku

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar hf., segir að ákveðið verði á stjórnarfundi í næstu viku hvenær boðað verði til hluthafafundar í Vinnslustöðinni sem Stillu-hópurinn óskaði eftir fyrr í mánuðinum. Sigurgeir segir lítið hægt að segja um þær fregnir að Ísfélag Vestmannaeyja hafi keypt þriðjungshlut Stillu í Vinnslustöðinni, fréttirnar séu nýjar og skoða þurfi málið. (meira…)

Ísfélagið kaupir hlut Stillu í Vinnslustöðinni

Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Fjárfestingafélagið Kristinn ehf. í Vestmannaeyjum hafa undirritað samning um kauprétt á öllum hlutum Stillu og fleiri félaga í eigu bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Um er að ræða tæplega þriðjungshlut í Vinnslustöðinni. Samningurinn er undirritaður í nafni óstofnaðs hlutafélags í eigu Ísfélagsins og Kristins, sem er í […]

Vinnslan byrjuð, Loksins!!!!

Þannig að við erum bara á fullu að frysta núna á meðan við liggjum við akkeri,höfum í vinslu í tvo til þrjá daga. Eitthvað hefur veiðin dottið niður hérna inni við Hvammsfjörð því öll skipin eru farin út og erum við hérna einir eftir og ég hef ekki hugmynd um hvar hin skipin eru, vonandi […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.