Með viljann að vopni
Séra Kristján bauð ÍBV liðinu í kirkju daginn fyrir leik og gaf þeim andlega næringu.
Sú orka leystist úr læðingi í leiknum gegn Aftureldingu í dag.

ÍBV strákarnir léku með hjartanu gegn Aftureldingu í dag. Þrátt fyrir hvert áfallið á fætur öðru að undanförnu gáfu strákarnir ekki upp vonina. Samheldi, gleði og barátta var einkennandi í hópnum síðustu daga.

Við fengum nýjan leikmann til okkar í gær.Hann heitir Sergiy Trotsenko og kemur frá Úkraínu. Hann þurfti að ferðast um langan veg til að koma til Eyja. Ferðin byrjaði á miðvikudaginn. Fyrst 1.000 km. í járnbrautalest frá austur hluta Úkraínu til höfuðborgarinnar Kiev. Þar þurfti hann að fara í norska sendiráðið og fá vegabréfsáritun, sem hann fékk ekki. Hann hringdi í Gintaras. Gintaras í mig, ég í Sjóvá, Þjóðskrá og að endingu í Útlendingastofu. Sólveig hjá Útlendingastofu hringdi sjálf út til þeirra í norska sendiráðinu og fékk þá til að gefa honum áritunina tíu mínútum fyrir lokun. Var um smámunasemi norðmannanna að ræða. Þaðan hélt hann út á flugvöll og flaug um nóttina til Parísar. Beið á flugvellinum í París í nokkra klukkutíma og flaug þá til Keflavíkur. Lenti á Íslandi kl.16:05 í gær og kemur þá í ljós að allur farangur hans var týndur. Hjálmar Baldursson beið eftir honum og keyrði honum beint í Herjólf. Þar tók við Herjólfsferð dauðans í 9 metra ölduhæð. Kominn til Eyja kl 22:35 tæpum þremur sólahringum frá því að hann lagði af stað. Spilar síðan leik í dag kl.15:00 og skoraði 8 af 24 mörkum ÍBV.

ÍBV byrjaði ekki vel og var komið 6 mörkum undir. En eftir leikhlé var eins og nýtt lið væri komið í hvítu treyjurnar. Og “Slæmi kaflinn” sem alltaf hefur verið í byrjun seinni hálfleiks varð “Góði kaflinn” eins og reyndar allur seinni hálfleikur. Frábært hjá ykkur strákar og Gintaras.

 

http://maggibraga.blog.is/blog/maggibraga/ 

Nýjustu fréttir

Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
ÍBV stelpurnar mæta Þrótti R. í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Innblásturinn er alls staðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.