Yður er í dag frelsari fæddur – eða var hann bara “endurfæddur” ?

Þessar upplýsingar skilja alla kristna menn eftir sem einfeldninga er trúa á staðlausa stafi því allan tímann var bara verið að fjalla um endurris sólarinnar á himni. Merkilegt að þessi uppristrú á sólinni skuli hafa orðið  til í þeim löndum þar sem skammdegis gætir ekki og varla sjónarmunur á sólarhæð hvort er um að ræða […]

Hugur okkar til komandi árs er jákvæður

Við á eyjar.net sendum út á nokkurn hóp eyjamanna tvær spurningar til að forvitnast hvernig árið 2007 hefði verið og hvort að einhverjar væntingar væri til ársins 2008. Elliði Vignisson bæjarstjóri var fyrstur til að svara og munum við birta svör þessara eyjamanna daglega næstu daga. Hvernig var árið 2007 fyrir þig og fjölskyldu þína?Árið […]

Verður Margrét Lára íþróttamaður ársins 2007?

Á morgun föstudag verður tilkynnt hver verður valinn Íþróttamaður ársins 2007 á Grand Hótel Reykjavík. Knattspyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir er í hópi 10 efstu í ár í vali íþróttafréttamanna en Margrét var einnig á topp 10 listanum á síðasta ári. Margrét Lára á að baki gott ár fyrir Val og Íslenska landsliðið og nýverið var […]

Lítill fugl stöðvar jólahaldið

Fjölskylda í Vestmannaeyjum fékk óvænta heimsókn á aðfangadagskvöld þegar labradorhundurinn Brjánsi bauð haftyrðli heim í jólastemminguna. Hundurinn, sem vanur er að hjálpa til við að ná og sleppa lunda­pysjum hafði farið út að viðra sig með eiganda sínum þegar örþreyttur haftyrðill varð á vegi þeirra. Þreyta fuglsins gerði það að verkum að hundurinn átti auðvelt […]

Það eru jólin, er það ekki???

Jólin er sá árstími þar sem maður fyllist einhverjum skemmtilegum krafti og tilhlökkun og langar virkilega til að sýna væntumþykju til þeirra sem standa manni næst. Þetta er kannski líka sá tími þar sem algengast er að maður ylji sér á æskuminningunum, hvernig jólin voru þegar maður var krakki. Í því samhengi vill maður helst […]

Gleðileg jól

Þegar nær er komið jólumOg næturhiminn skínBjart er yfir flestum bólumOft það okkur villir sínÞví það hafa ekki allir sömu gæðieins og flest við höfum hinJá gefðu öllum jólinLjúfi Eyja jólin mín.                       Höf:Sigurður Óskarsson Eigendur 24seven ehf rekstraraðili www.eyjar.net óska öllum eyjamönnum nær og fjær gleðilegra jóla. (meira…)

Gleðileg jól…

Ísland væri miklu betur statt ef að ekki væri fyrir alla þessa heimskingja og aumingja sem vinna láglaunastörf og eru oftar ekki baggi á þjóðfélaginu. Það yrði bara sjálfsafgreiðsla í þessum búðum eins og Bónus, Rúmfatalagernum og öðrum ömurlegum verslunum. Svo væri hægt að troða öllum Pólverjunum í að skúra og hreinsa göturnar svo að […]

Úthlutað úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja

Árleg úthlutun úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja fór fram í gærdag. Styrktar- og menningarsjóðurinn var stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra og er þetta í tuttugasta skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum, en fyrsta úthlutunin var á Þorláksmessu árið 1988. Að þessu sinni fengu eftirfarandi styrki: GaujulundurÞað var sumarið 1988 […]

Milljarða þakkir fyrir Eyjajól

Í gærdag skellti ég mér á tónleika í Hvítasunnukirkjunni með Kaffihúsakórnum og Óskari og Laugu. Umgjörðin sem tók á móti tónleikagestum var glæsileg og greinilegt var frá upphafi að mikill metnaður hafði verið lagður í verkið allt. Sviðsmyndin var öll hin glæsilegasta og myndaði sterka heild utan um hljómsveitina og kórinn upp á sviðinu. Hver […]

Kviknaði í útfrá þvottavél

Rétt eftir 12:00 kom útkall á slökkvilið Vestmannaeyja þar sem kviknað hafði í  út frá þvottavél húsi á Hásteinsvegi. Slökktu lögreglumenn í eldinum með duftslökkvitæki og reykræsti slökkviliðið baðherbergið. Lítið tjón varð en það var til happs að húsráðandi varð var við eldinn og náði að gera viðvart áður en eldurinn náði að breiðast út. […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.