Hungraðir og þyrstir fari saddir og ánægðir

Í aldarfjórðung hefur Birgir Sveinsson staðið vaktina í Tvistinum sem er skyndibitastaður og sjoppa af bestu gerð. Hann byrjaði neðarlega við Heiðarveginn en flutti sig seinna ofar þar sem Faxastígur sker Heiðarveginn. Þar eru næg bílastæði, húsnæðið er rúmgott og bjart og þar mætir manni hlýlegt og vinalegt viðmót. (meira…)
Lofa góðum tilþrifum og fjöri

Á laugardaginn fer fram fyrsta torfærukeppnin í Íslandsmótinu. Mótið verður haldið í Vestmannaeyjum og hefst keppni kl. 13:30 austur á Nýja hrauni. Bílarnir fara í gegnum sex brautir og má búast við að keppnin standi eitthvað fram eftir degi. Alls eru 23 bílar skráðir til keppni, sem gerir mótið eina af stærstu torfærukeppnum sem haldnar […]
Hefur margfeldisáhrif í Eyjum

Ákvarðandir Siglingastofnunar eru enn í sviðsljósinu í Vestmannaeyjum en í þetta sinn er ekki um að ræða ákvörðun vegna Landeyjahafnar. Nýjasta útspil stofnunarinnar er að herða enn reglur varðandi svokallaða Rib báta en fyrirtækið Ribsafari gerir út tvo slíka. Nú má ekki sigla með farþega nema í neyðarflotgöllum í maí og eftir lok september, þegar […]
Enskur framherji til ÍBV

Enski framherjinn Lateef Elford-Alliyu sé búinn að skrifa undir mánaðar lánssamning við ÍBV, með möguleika á framlengingu. Lateef er tvítugur og á mála hjá enska C-deildarliðinu Crawley. Hann hefur áður verið á Íslandi en hann var var hjá Keflavík sumarið 2010. (meira…)
Týrari að taka við United?

Ein stærsta frétt knattspyrnuársins var staðfest í morgun en Alex Ferguson, einn farsælasti knattspyrnustjóri sögunnar, hefur ákveðið að hætta með Manchester United. Fjölmargir eru orðaðir við stöðuna en þeirra helstur þessa stundina er David Moyes, sem hefur verið framkvæmdastjóri Everton síðan 2002. Ekki skemmir heldur fyrir að Moyes æfði og spilaði með Knattpyrnufélaginu Tý seint […]
Göngum saman, brjóstanna vegna

Styrktarfélagið Göngum saman hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á krabbameini í brjóstum kvenna og rannsaka eðli og uppruna sjúkdómsins. Gengið verður á 14 stöðum um land allt að þessu sinni en Eyjamenn hafa ekki verið með nema einu sinni áður. Undirritaður ætlar að ýta þessu úr vör að nýju. (meira…)
Blaðamaður Daily Mail var á Hásteinsvelli

Blaðamaður og ljósmyndari frá Daily Mail í Englandi voru viðstaddir opnunarleik Íslandsmótsins á Hásteinsvelli þegar íBV lagði ÍA. Blaðamaðurinn, Matt Barlow lýsir upplifun sinni af leiknum og umhverfinu en tilgangurinn var auðvitað að fylgjast með enska landsliðsmarkverðinum fyrrverandi David James. „Hann er fluttur á vindbarinn eldfjallaklett við suðurströnd Íslands, þar sem 4500 manns búa og […]
�?sagðar sögur Vestmannaeyjagossins

„Við höfum verið þessa hugmynd í kollinum lengi og erum fegin að geta loksins farið alla leið með þetta,“ segir fréttamaðurinn Sighvatur Jónsson sem, ásamt Jóhönnu Ýri Jónsdóttur, er að gera heimildarmynd um Vestmannaeyjagosið. (meira…)
Sýningum á GREASE að ljúka

Leikfélag Vestmannaeyja sýnir nú í vikunni síðustu sýningar af söngleiknum Grease. Eftir helgina heldur stór hluti leikara og starfsfólks til annarra verkefni og er okkur því ekki fært að bæta við fleiri sýningum. Sýningar verða miðvikudaginn 8. maí klukkan 20:30 og á uppstigningardag 9. maí kl 14:30 og er tekið við pöntunum í síma 852-1940. […]
Vill meira frá stuðningsmönnum á Hásteinsvelli

Ágætur stuðningsmaður ÍBV sendi ritstjórn Eyjafrétta línu. Stuðningsmaðurinn vildi ekki láta nafn síns getið en bað um að eftirfarandi hvatning til annarra stuðningsmanna myndi birtast hér á síðunni. Nú loksins er fótboltasumarið hafið. Það ætti að vera keppikefli okkar stuðningsmanna ÍBV að viðhalda því að Hásteinsvöllur sé einn erfiðasti útivöllur í Pepsi deildum. Því er […]