�??Framtíðin er stórútgerð og trilluhorn�??

„Stjórnarfundur Skipstjóra-og stýrimannafélagsins Verðandi haldinn þann 13-09-2012 mótmælir harðlega framgöngu eiganda útgerðarfélagsins Bergur-Huginn að selja fyrirtækið með öllum aflaheimilduum frá Vestmannaeyjum án þess að tala við Eyjamenn áður. Núna sitja Eyjasjómenn og Eyjamenn allir í sárum sínum.“ (meira…)
Fjölmenni á frumsýningu Djúpsins

Kvikmyndin Djúpið var frumsýnd á Íslandi í gær, sunnudag. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum þegar Hellisey VE fórst og fjórir ungir Eyjamenn létu lífið. Einn komst af, Guðlaugur Friðþórsson en myndin er að einhverju leyti byggð á hans sögu, bæði í slysinu og eftir slysið. Myndin er raunsæ og mátti heyra saumnál detta í […]
�??�?g er eiginlega dofinn ennþá�??

„Þetta er mjög skrýtin tilfinning,“ segir Sigurbjörn E. Viðarsson en um helgina var brotist inn á heimili hans í Vestmannaeyjum. Þjófurinn lét sér ekki nægja að stela 46 tommu flatskjá heldur gerðist hann einnig svo bíræfinn að kveikja í. Virðist hann hafa verið staðráðinn í að láta elda loga því hann kveikti bæði í sófanum […]
Lundasumarið 2012 seinni hluti

Í gær var liðinn nákvæmlega mánuður síðan allur lundi úr eyjunum norðan við landið var farinn, á meðan enn er einn og einn að bera síli hér í Vestmanneyjum og því ljóst, að lundinn í Eyjum er búinn að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Þegar þessari helgi lýkur má reikna með að það verði komnar […]
Eyjamenn sendu Grindvíkinga niður í 1. deild

ÍBV er komið upp í annað sæti deildarinnar eftir 2:1 sigur á Grindavík í dag á Hásteinsvellinum. Eyjamenn byrjuðu mjög vel og komust í 2:0 með mörkum Christian Olsen og Andra Ólafssonar en Andri skoraði úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Víði Þorvarðarsyni. (meira…)
Íkveikja í íbúðarhúsi í Eyjum

Ljóst er að eldur, sem kom upp í íbúðarhúsi í Vestmannaeyjum snemma í morgun, var af mannavöldum. Eldurinn kom upp á tveimur stöðum í íbúðinni og vegsummerki sýndu að brotist hafði verið inn og 46 tommu sjónvarpstæki stolið. (meira…)
Íbúð illa farin eftir eld

Rétt fyrir klukkan hálf sjö í morgun var allt tiltækt slökkvilið í Vestmannaeyjum kallað út vegna bruna í íbúð við Vestmannabraut 37. Íbúðin er á efri hæð hússins en á neðri hæð er verslun. Þegar að var komið tók mikill reykur á móti lögreglu- og slökkviliðsmönnum en eldurinn var ekki mikill. Enginn var í íbúðinni, […]
�?trás vegna Fráveitu Vestmannaeyja

Á síðasta fundi framkvæmda- og hafnarráðs gerðu Sveinn R. Valgeirsson, Ólafur Snorrason og Friðrik Björgvinsson tæknifræðingur grein fyrir stöðunni. Framundan er meðal annars að fleyta nýrri útrásarpípu norður fyrir Eiði og síðan að tengja hana en þetta er mikil og vandasöm framkvæmd. (meira…)
Alvöru Húsasmiðjubúð með meira af Húsasmiðjuvörum

Gangi áætlanir eftir flytur Húsasmiðjan af Garðaveginum í nýtt hús við Græðisbraut um helgina og opnar á nýjum stað eftir helgi, mánudaginn 17. september. Nýja húsið er ríflega tvöfalt stærra en það sem Húsasmiðjan er í og mun öll aðstaða batna til muna. Þá verður Blómaval einnig á nýja staðnum sem er nýjung í Vestmannaeyjum. […]
�?eir stóru verða líka að fara að lögum

„Vestmannaeyjabær hefur nú hafið undirbúning að málsókn. Hann er tvíþættur, annars vegar það sem snýr að forkaupsrétti heimamanna og hins vegar erum við að láta skoða það fyrir okkur hvort Samherji, sem er stór eigandi að Síldarvinnslunni, hafi rofið 12% þakið á kvótaeign eins og það er skilgreint í lögum,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri, þegar […]