Leikurinn klukkan 13:00 á morgun

Leiktíma leiks ÍBV og Vals í 1. umferð Pepsídeildar kvenna hefur verið breytt. Leikurinn átti upphaflega að fara fram klukkan 16:00 á morgun, sunnudag en leiknum hefur verið flýtt til klukkan 13:00. Leikurinn verður án efa mjög spennandi enda voru liðin tvö í toppbaráttu í fyrra og enduðu í öðru og þriðja sæti deildarinnar. (meira…)

Gunnar Karl fánaberi íslenska hópsins

Eyjapeyinn Gunnar Karl Haraldsson tekur þátt í Norðurlandamóti fatlaðra í boccia um helgina. Mótið fer fram í Laugardalshöll í dag en mótið hófst í morgun með sérstaktri setningarathöfn. Þar gengu keppendur þjóðanna inn hver á fætur annarri en Gunnar Karl var fánaberi íslenska hópsins. (meira…)

Arndís �?sk syngur lög Adele í kvöld

Ég hef verið einlægur aðdáandi Adele og hennar tónlistar síðan tónlistarferill hennar hófst. Það var því draumur minn að halda tónleika með lögunum hennar þar sem að ég segi einnig aðeins frá henni og hvernig hún samdi lögin. Einnig fannst mér röddin mín henta einstaklega vel í lögin hennar. Sá draumur varð að veruleika þegar […]

ÍBV Íþróttafélag fær gæðastimpilinn �??Fyrirmyndarfélag ÍSÍ�??

Íþróttasamband Íslands (ÍSÍ) er með ákveðið gæðakerfi sem snýr að því hvernig starfsemi íþróttafélaga er háttað. Ef félög óska eftir, geta þau látið ÍSÍ gera úttekt á starfsemi sinni með það fyrir augum að geta tekið upp gæðastimpilinn „Fyrirmyndarfélag ÍSÍ“. Til þess að standast kröfur ÍSÍ verða aðildarfélögin uppfylla ákvæði varðandi menntun þjálfara, unglingastarf, forvarnarstarf […]

Lengi lifir í gömlum glæðum

Þeir eru margir ungu drengirnir sem hafa átt sér þann draum að spila á hljóðfæri og komast í hljómsveit. Sumir hafa eljuna til að læra hljóðfæraslátt og kjark til að stíga á svið eftir mismunandi stífar æfingar í bílskúrnum hjá einhverj­um pabbanum. Þarna hafa margir snillingar i tónlistinni stigið sín fyrstu skref, komist í gegnum […]

�?g horfi aldrei á �?tsvar

Ljóskan var að vinna hjá hinu opinbera. Það var komið að mánaðamótum, verkstjórinn gekk á milli starfsfólksins og afhenti því launaseðlana sína. Þegar sú ljóshærða fékk sinn launaseðilinn renndi hún yfir hann með augunum, en varð ekkert smá hissa, þegar hún sá að það var dregið af henni Útsvar. (meira…)

Herrakvöld knattspyrnudeildar í kvöld

Knattspyrnudeild ÍBV heldur sitt árlega Herrakvöld í kvöld, föstudag 11. maí. Að þessu sinni verður skemmtunin haldin í Höllinni, húsið opnað kl. 19 og hefst borðhald klukkutíma síðar. Veislukokkar verða þeir Kári Fúsa, Kristó, Hjalli ásamt Einsa Kalda og fleirum. Skemmti­atriðin verða rándýr en veislu­stjóri verður Afreksmaðurinn Sævar Helgi Geirsson. Ræðu­maður kvöldsins er svo hinn […]

Byggðasafnið fagnar sumaropnun og lokadegi vertíðar

Árið 2012 er afmælisár í Safnahúsi því að Byggðasafnið fagnar 80 ára afmæli og Bókasafnið verður 150 ára. Samfelld dagskrá verður afmælisvikuna 30. júní til 8. júlí en Safnahúsið er í hátíðarbúningi allt árið og sýningar og viðburðir í öllum deildum hússins. Laugardaginn 12. maí hefst sumaropnun í Sagnheimum, byggðasafni með dagskrá kl. 14 en […]

Herdís heilsar upp á Eyjamenn

Herdís Þorgeirsdóttir sem er meðal átta frambjóðenda til forseta Íslands kom til Vestmannaeyja í gær og gerðist víðreist. Heilsaði upp á fólk í fyrirtækjum og mætti á völlinn í leik ÍBV og Breiðabliks á Hásteinsvelli. Herdís verður í Eyjum í allan dag og heldur áfram að heilsa upp á Eyjamenn. (meira…)

Markalaust jafntefli gegn Blikum

Eyjamenn gerðu markalaust jafntefli í kvöld þegar Breiðablik kom í heimsókn. Aðstæður voru allar hinar ákjósanlegustu í kvöld, ágætis veður, hæg gola og völlurinn kemur sérlega vel undan vetri. Leikurinn var ágætis skemmtun en mörkin vantaði sárlega. Eyjamenn voru í heildina sterkari aðilinn en Blikar hefðu vel getað stolið sigrinum undir lokin. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.