KFS í vondum málum

Staða KFS er ekki góð eftir fyrri leik liðsins gegn Árborg í fyrstu umferð 3. deildar. Leikur liðanna fór fram á Hásteinsvellinum í Eyjum við frábærar aðstæður og leikurinn var hin ágætasta skemmtun. Árborg náði hins vegar að nýta tvö af sínum færum á meðan KFS nýtti ekkert og lokatölur því 0:2 fyrir Árborg. Liðin […]

Eyjastelpur komnar með aðra löppina í úrvalsdeild

Kvennalið ÍBV er komið með aðra löppina upp í úrvalsdeild eftir glæsilegan 0:4 sigur á Keflavík í dag. Leikurinn var sá fyrri af tveimur í undanúrslitum 1. deildar en sigurvegari einvígisins vinnur sér sæti í úrvalsdeild næsta sumar. Liðin mætast á nýjan leik næsta miðvikudag á Hásteinsvelli. (meira…)

�?sispennandi lokasprettur framundan

Nú er baráttan um Íslandsmeistara­titilinn orðin fjögurra liða keppni. KR og Breiðablik eru nú jöfn í öðru sæti, tveimur stigum á eftir ÍBV sem er í því efsta með 33 stig. Skammt undan eru svo sjálfir Íslandsmeistararnir í FH með 29 stig. KR og ÍBV hafa það í hendi sér hvort þau vinna Íslandsmótið eða […]

Móbergshellurnar fluttar til baka

Grjótnám Árna Johnsen á dögunum vakti talsverða athygli en hafði þingmaðurinn sótt nokkrar móbergshellur úr barðinu ofan við Höfðavík við Stórhöfða og fært heim að heimili sínu, Höfðabóli. Í morgun voru svo stórtækar vinnuvélar að störfum við heimili Árna þar sem hellurnar voru fjarlægðar en fyrirhugað er að koma þeim fyrir á sama stað aftur. […]

KFS tekur á móti Árborg á morgun

Á morgun, laugardag mun KFS taka á móti Árborg í fyrstu umferð úrslitakeppni 3. deildar karla. KFS endaði í öðru sæti í B-riðli á meðan Árborg vann A-riðil mjög örugglega, tapaði aðeins einum leik í sumar, gerði eitt jafntefli og má því búast við erfiðum róðri hjá Eyjamönnum. En þeir þekkja það manna best að […]

Fulltrúi samgönguráðuneytisins mætti ekki

Eins og Eyjafréttir.is greindu frá á miðvikudaginn liggur ekki enn fyrir hvort farnar verða þrjár eða fjórar ferðir á dag í vetraráætlun Herjólfs. Auglýst vetraráætlun gerir ráð fyrir því að Herjólfur sigli einungis þrjár ferðir á dag, alla virka daga sem og á laugardögum. Í umfjöllun á miðvikudaginn sagðist Elliði Vignisson bæjarstjóri ítrekað hafa óskað […]

�?tlum okkur upp í úrvalsdeild

Eins og áður hefur komið fram, leikur kvennalið ÍBV gegn Keflavík á morgun, laugardag í undanúrslitum 1. deildar kvenna. Leikið verður heima og heiman og er fyrri leikur liðanna í Keflavík en liðin mætast svo aftur í Eyjum á miðvikudag. Í hinni viðureigninni eigast við Þróttur og Selfoss og fara leikir þeirra fram á sama […]

Múrbúðin opnar í Eyjum

Múrbúðin, sem rekur byggingavöruverslanir í Reykjavík, Reykjanesbæ, Akureyri og Húsavík, opnar verslun í Vestmannaeyjum á næstu vikum. Þar verða í boði allar almennar bygg­ingavörur og eigandinn óttast ekki samkeppni við verslanir sem fyrir eru. Múrbúðin verður til húsa að Flötum 29 þar sem Geisli var áður. (meira…)

Hvetja Eyjamenn til að fjölmenna til Keflavíkur

Kvennalið ÍBV leikur mikilvægasta leik sinn til þessa þegar stelpurnar sækja Keflavík heim í umspili um laust sæti í úrvalsdeild á laugardag. Leikið er heima og heima og er þetta fyrri leikur liðanna. Búast má við jöfnum og skemmtilegum leik en leikurinn hefst klukkan 14:00. Forráðamenn ÍBV óska eftir því að stuðningsmenn liðsins fjölmenni til […]

Með smyril í fóstri

Jarl Sigurgeirsson hefur hýst smyril sem hann keyrði fram á í Grímsnesinu fyrir rúmri viku síðan. Hann er meiddur á væng og vonar Jarl að meiðsl­in séu ekki alvarleg og hægt verði að sleppa smyrlinum einhvern næstu daga. „Ég var að keyra í Gríms­nesinu þegar ég sá smyrilinn standa á veginum. Hann var svolítið vankaður […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.