Stendur ekki á Eimskip

Guðmundur Nikulásson, fram­kvæmdastjóri Eimskip innanlands sagði í samtali við Fréttir að hann sæi ekki neitt því til fyrirstöðu að bæta fjórðu ferðinni inn í vetrar­áætlun Herjólfs, frá 1. október til 30. apríl. „Það er reyndar ekki Eimskip sem ákveður það heldur Vega­gerðin, sem aftur heyrir undir samgönguráðuneytið. Allir aðilar sem að þessu koma munu funda […]

Margrét Lára með tvö í stórsigri

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk í stórsigri íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu en liðið lék gegn Eistlandi ytra í dag. Lokatölur urðu 0:5 Íslandi í vil en þetta var síðasti leikur liðsins í undankeppni HM. Ísland hefur lokið leik, liðið endaði í öðru sæti riðilsins á eftir Frökkum sem fara í umspil um fjögur laus […]

�?rjár eða fjórar ferðir í vetur?

Enn liggur ekki fyrir hvort ferðir Herjólfs verði þrjár eða fjórar yfir vetrartímann. Samkvæmt núverandi áætlun er gert ráð fyrir fjórum ferð­um alla daga vikunnar til 1. október. Þá verða þrjár ferðir mánudaga til fimmtudags og laugardag en fjórar ferðir föstudag og sunnudag. Bæjar­yfirvöld og Eimskip gerðu sam­komulag þess efnis að greiða fyrir aukaferðir, þannig […]

Leitað að fulltrúum Vestmannaeyjabæjar fyrir �?tsvar

Nú er hafin leit að fulltrúum Vestmannaeyja fyrir spurningaþáttinn Útsvar sem verður á dagskrá Ríkissjónvarpsins næsta vetur. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku eða þekkja til ákjósanlegra fulltrúa eru beðnir að hafa samband sem allra fyrst og eigi síðar en 31. ágúst í síma 488 2000 eða á postur@vestmannaeyjar.is. (meira…)

�?murleg aðkoma að spröngunni

Lesandi Eyjafrétta sendi inn þessar myndir en þær sýna aðkomuna að spröngunni í gærmorgun. Einhverjir óprúttnir einstaklingar höfðu gert sér það að leik að velta um bekk og hengt upplýsingaskilti í sjálfa sprönguna. Ferðamenn sem komu að spröngunni og vildu prófa þessa fyrrum þjóðaríþrótt Eyjamanna störðu furðulostnir á skemmdaverkin. (meira…)

Ferjan annar ekki eftirspurn og bæjaryfirvöld óska eftir aukaferð

Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa óskað eftir því að bætt verði við aukaferðum Herjólfs næstkomandi laugardag. Sprenging hefur orðið í fólksflutningum milli lands og Eyja en Herjólfur hefur frá 21. júlí síðastliðnum, flutt yfir 60 þúsund farþega. Til samanburðar má geta þess að allt síðasta ár flutti Herjólfur 127 þúsund farþega. Nú þegar er orðið fullt […]

Leikfélagið fagnar 100 ára afmæli sínu

Leikfélag Vestmannaeyja býr sig nú undir vetrarstarfið en um þessar mundir fagnar Leikfélagið 100 ára afmæli sínu. Af því tilefni verða settar upp stórbrotnar og mikilfenglegar sýningar á þessu leikári, eins og segir í fréttatilkynningu frá Leikfélaginu. Vetrarstarfið hefst hins vegar með leiklistarnámskeiði sem byrja eftir helgi en Eyjamaðurinn Haraldur Ari Karlsson mun leikstýra hjá […]

Eyjamenn áfram á toppnum

Gera má ráð fyrir að Eyjamenn hugsi hlýlega til Andra Marteinssonar og lærisveina hans í Haukum eftir úrslit kvöldsins. Hið ótrúlega gerðist, neðsta liðið, Haukar lagði Breiðablik að velli og það á sjálfum Kópavogsvellinum en þetta er fyrsti sigurleikur Hauka í sumar. Þetta eru klárlega óvæntustu úrslit það sem af er sumars og benda ótvírætt […]

Engar pysjur en fýlsunganum bjargað

Undanfarna áratugi hafa börn í Vestmannaeyjum tekið þátt í viðamiklum björgunarstörfum á þessum árstíma þegar lundapysjur hafa látið blekkjast af ljósum bæjarins og lent í sjálfheldu í Vestmannaeyjabæ. Nú er afkoma lundastofnsins hins vegar í sögulegu lágmarki og ekki útlit fyrir að pysjurnar láti sjá sig, Eyjakrökkum til mikillar mæðu. En krakkarnir deyja þó ekki […]

Hvetja ökumenn til að fara varlega, sérstaklega í kringum skólana

Síðustu tvær vikur hafa verið með rólegra móti hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum og engin alvarleg mál ratað inn á borð lögreglunnar. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram og engin teljandi vandræði komu upp við skemmtistaði bæjarins. Nú eru skólarnir að hefja vetrastarf sitt en lögregla hvetur ökumenn til að fara varlega, sérstaklega í kringum skóla bæjarins. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.