�?vílíkt og annað eins sigurmark!

Það verður ekki annað sagt en að dramatíkin hafi verið allsráðandi á lokakaflanum í leik ÍBV og Keflavíkur. Keflvíkingur byrjuðu á að skjóta í stöng, Tonny Mawejje skaut í slá í algjöru dauðafæri, Keflvíkingar fengu rauða spjaldið og þegar öll von virtist úti, kom varnarmaðurin Eiður Aron Sigurbjörnsson, klippti boltann á lofti og negldi boltanum […]

Tveir Eyjamenn sækja um í Grindavík

Tveir Eyjamenn eru meðal þeirra 51 umsækjenda sem hafa lagt inn umsókn um stöðu bæjarstjóra Grindavíkur, þeir Andrés Sigurvinsson og Þorsteinn Gunnarsson. Andrés hefur verið verkefnastjóri hjá Árborg undanfarið en áður var hann framkvæmdastjóri hjá Vestmannaeyjabæ. Þorsteinn er upplýsinga- og þróunarfulltrúi í Grindavík en vann m.a. áður hjá Stöð 2 og á vikublaðinu Fréttum í […]

Sumarblíða í Eyjum

Nú er einmuna sumarblíða í Vestmannaeyjum en Eyjamenn og gestir þeirra hafa notið veðurblíðunnar utandyra í dag. Öskufjúk gerði Eyjamönnum lífið leitt í gær með tilheyrandi roki en í dag er allt annað uppi á teningnum. Samkvæmt mælingum Veðurstofu Íslands fór hitinn upp í tæpar 17 gráður í Vestmannaeyjabæ í dag en hitastigið hefur sjálfsagt […]

Binni flottur á Hrafnaþingi

Ég eins og margir aðrir hef verið dálítið gagnrýnin á kvótakerfið og þá einkum varðandi veðsetningu og hvernig útgerðarmenn hafa getað selt og leigt fyrir himinháar upphæðir. Það var því forvitnilegt að hlusta í fyrrakvöldi á Binna í Vinnslustöðinni ræða um fyrningaleiðina, sem Samfylkingin hefur boðað. Binni dró upp mjög skýra mynd af því hvernig […]

Foreldrum boðið að vinna við gæslu í skiptum fyrir æfingagjöld

Eins og undanfarin ár hyggst ÍBV-íþróttafélag að bjóða foreldrum barna sem æfa hjá félaginu, að vinna fyrir æfingagjöldum barnanna. Foreldrar vinna þá við gæslu á Þjóðhátíð gegn niðurfellingu æfingagjaldanna en sami háttur hefur verið hafður á undanfarin ár og hefur fyrirkomulagið mælst vel fyrir. Í bréfi til foreldra og forráðamanna er þeim boðinn þessi kostur […]

Toppslagur á Hásteinsvelli í kvöld

Toppslagur Pepsídeildarinnar í 11. umferð fer fram á Hásteinsvelli í kvöld þegar ÍBV tekur á móti Keflavík. Liðin hafa bæði verið við og á toppnum í sumar en sem stendur er ÍBV í 2. sæti með 20 stig, eða jafnmörg og topplið Breiðabliks, á meðan Keflavík er í 3. sæti með 19 stig. Það má […]

Gunnar Heiðar til skoðunar hjá Charlton

Knattspyrnumaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson er kominn til reynslu hjá enska 2. deildarliðinu Charlton. Gunnar er á mála hjá danska úrvalsdeildarliðinu Esbjerg. Hann eitt ár eftir af samningi sínum við félagið en ljóst er hann verður ekki áfram í herbúðum liðsins og leitar að nýjum vinnuveitendum. (meira…)

Hundruð farþega fara um Landeyjahöfn við erfiðar aðstæður

Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að áfram verði unnið að því að koma upp flotbryggju í Landeyjahöfn, þótt leyfi Siglingastofnunar liggi ekki fyrir. „Á seinustu dögum hefur Vestmannaeyjabær átt í góðri samvinnu við Siglingastofnun vegna þeirrar brýnu þarfar sem er fyrir neyðaraðkomu smábáta í Landeyjahöfn. Bent hefur verið á að nú þegar hafa hundruðir farþega farið […]

Ekkert leyfi komið til byggingar smábátaaðstöðu í Land-Eyjahöfn

Vegna fréttar um að leyfi hafi fengist til að Vestmannaeyjabæjar byggði aðstöðu fyrir smábáta í Land-Eyjahöfn, vill Siglingastofnun taka fram, að slíkt leyfi er ekki fyrir hendi. Menn einhendi sér þessa dagana í að klára ferjulægið, til að hægt verði að taka höfnina í notkun 21. júlí næstkomandi. Það sé forgangsatriði. (meira…)

Ribsafari hættir siglingum í Landeyjahöfn til 22. júlí

Vegna fréttar í Ríkisútvarpinu í gær hafa forsvarsmenn Ribsafari í Vestmannaeyjum ákveðið að hætta siglingum í Landeyjahöfn til 22. júlí eða degi eftir að Herjólfur hefur siglingar í höfnina. Þeir segjast sýna því skilning að höfnin sé vinnusvæði. Forstöðumaður hafnasviðs Siglingastofnunar sagði í útvarpsfréttum í gær að síaukin umferð um Landeyjahöfn, bæði á sjó og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.