Komu fjallgöngukonu til bjargar

Björgunarsveitarmenn í Vestmannaeyjum komu erlendri göngukonu til hjálpar í gærkvöldi eftir að hana hafði borið af leið á fjalli ofan við Herjólfsdal á Heimaey. Þar er snarbratt og þegar hún áttaði sig á að hún var komin í vandræði, hringdi hún á gistiheimilið, þar sem hún bjó, og þaðan var kallað eftir aðstoð. Leiðangurinn gekk […]
ÍBV leikur næst útileik eftir �?jóðhátíð

Eyjamenn eiga framundan mikið af heimaleikjum en næstu fimm leikir liðsins í deildinni eru á heimavelli. Eyjamenn eiga leik við Keflavík á fimmtudaginn og þar á eftir koma leikir við Fram og Val. Eftir Þjóðhátíð eru svo tveir heimaleikir við Hafnafjarliðin, FH og Hauka. Næsti útileikur liðsins er gegn Breiðablik á Kópavogsvelli þann 16. ágúst […]
Goslokahátíðin heppnaðist mjög vel

Goslokahátíðin 2010 fór einstaklega vel fram en dagskrá hátíðarinnar stóð frá fimmtudegi og fram á sunnudagskvöld. Fjölmargt var í boði fyrir unga sem aldna, allt frá barnatónleikum til undirfatasýningar en hér að neðan má sjá myndir frá hátíðahöldunum, m.a. frá Hlöðuballinu, Splass-partíi og hátíðahöldunum á Skvísusundi. (meira…)
Glæsilegur útisigur í Garðabænum

Eyjamenn tylla sér enn og aftur á topp Pepsídeildarinnar, tímabundið í það minnsta en ÍBV lagði Stjörnuna að velli í Garðabænum. Lokatölur leiksins urðu 0:2 fyrir ÍBV en sigurinn var torsóttur því Garðbæingar voru lengst af sterkari. En magnaður varnarleikur Eyjaliðsins varð til þess að marktækifæri heimamanna voru fá og ef eitthvað klikkaði, greip Albert […]
Eddie Walker spilar í Vinaminni í kvöld

Í kvöld klukkan 21.00 mun Eddie Walker leika í Vinaminni Kaffihús sem opnaði í Baldurshagahúsinu í gær. Walker er einn besti kassagítarpikkari frá Bretlandi eins og segir í fréttatilkynningu frá Vinaminni. Leikin verður gömul, hefðbundin blús og Ragtime til Western Swing og gömul sveitatónlist. Walker mun m.a. flytja lög eftir Jimmie Rodgers, Blind Willie McTell, […]
ÍBV sækir Stjörnuna heim í dag

Karlalið ÍBV sækir í dag Stjörnuna heim í Garðabæinn en leikur liðanna hefst klukkan 16.00. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin klukkan 15:45. ÍBV er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig, jafn mörg stig og Breiðablik sem er í öðru sæti en með betri markatölu. Efstir […]
Baráttusigur KFS í morgun

KFS komst nú í morgun í 2. sæti B-riðils 3. deildar karla eftir 5:3 sigur á Ægi frá Þorlákshöfn. Leikurinn fór fram á Týsvellinum og tafðis um 45 mínútur þar sem Ægismenn töfðust á ferð sinni í gegnum Landeyjahöfn og til Eyja. En það var engu líkara en það væru Eyjamenn sem ekki mættu til […]
Bátsferðin mín – gosnóttina 1973

Byggðasafn Vestmannaeyja safnar frásögnum ykkar. Goslokahelgina hefst söfnun á frásögnum ykkar um bátsferðina frá Vestmannaeyjum gosnóttina 1973. Í hvaða bát varstu? Á hvaða aldri varstu? Hverjir voru samferða þér? Hvernig var upplifunin? Hvað fór í gegnum huga þinn? Þessi söfnun frásagna heldur áfram eftir goslokahelgi og mun taka nokkurn tíma. (meira…)
James Hurst snýr aftur til ÍBV

Bakvörðurinn knái James Hurst mun snúa aftur til ÍBV og spila með liðinu út ágústmánuð. Þetta staðfesti Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri fyrir stundu en Hurst hefur verið einn allra sterkasti leikmaður sumarsins á Íslandi og vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína. Það var enska 1. deildarliðið Portsmouth sem hafði frumkvæðið að því að Hurst sneri aftur […]
Samið um frágang á bílastæðum og göngustígum í Land-Eyjahöfn

Nú líður óðum að þeim mikilvæga áfanga í samgöngumálum Vestmannaeyinga, þegar Landeyjahöfn verður tekin í notkun miðvikudaginn 21. júlí n.k.. Í morgun var undirritaður samningur um frágang lóðar en hann felur m.a. í sér malbikun bílastæða og göngustíga. (meira…)