KFS endaði tímabilið með stæl

Það er óhætt að segja að KFS hafi endaði tímabilið með stæl en í gær tók liðið á móti nágrönnum sínum frá Rangárþingi eystra í KFR. Tímabilið hefur verið slakt hjá KFS, liðið Eyjamenn höfðu sett stefnuna á úrslitakeppni og sæti í 2. deild en áttu í raun aldrei inni í myndinni. Lokatölur leiksins í […]

Toppþjónusta

Það er föstudagur, stákarnir okkar sigruðu Spánverja og Ísland leikur um gullið á sunnudaginn. Það er ekki hægt annað en vera kátur. Fátt þjappar þjóðinni meira saman en árangur á íþróttasviðinu. Og í tilefni dagsins ætlum við að gefa karlrembunni lausan tauminn. (meira…)

Selfoss vann Njarðvík – ÍBV og Stjarnan töpuðu stigum

Fjórir leikir fóru fram í átjándu umferðinni í fyrstu deild karla í gærkvöldi. KA sigraði ÍBV óvænt fyrir Norðan, Selfoss sigraði Njarðvík og er því fimm stigum á undan Stjörnunni sem gerði markalaust við Víking Ólafsvík. Þá gerðu Víkingur og Leiknir úr Reykjavík 1-1 jafntefli. (meira…)

Lundapysja í 108 Reykjavík

Eyjamaðurinn Hlöðver Guðnason var á leiðinni heim úr vinnu á föstu­daginn þegar hann rakst á þessa lundapysju í Klettagörðum. Þar var hún að spóka sig á miðri götu og auðvelt fyrir lundakall og fyrrverandi pysjusafnara að ná henni. Hún var mjög spræk, lítill dúnn var á henni og var hún nokkuð vel gerð. Sennilega villst […]

Tap fyrir norðan

Topplið ÍBV í 1. deild karla tapaði í kvöld fyrir KA á Akureyri, 2-1, er átjánda umferð deildarinnar kláraðist með fjórum leikjum. Elmar Dan Sigþórsson kom KA yfir með marki undir lok fyrri hálfleiks en Ingi Rafn Ingibergsson jafnaði metin á 76. mínútu. Steinn Gunnarsson skoraði sigurmark KA þegar tvær mínútur voru til leiksloka. (meira…)

Eyjamenn sækja KA heim í kvöld

Í kvöld sækir topplið ÍBV í 1. deild KA heim til Akureyrar en leikur liðanna hefst klukkan 18.30 á Akureyrarvelli. Fyrri leik liðanna lauk með 1:0 sigri ÍBV á Hásteinsvellinum en Atli Heimisson skoraði sigurmarkið. Atli kemur einmitt aftur inn í leikmannahóp ÍBV eftir leikbann í síðasta leik. Með sigri færist ÍBV enn nær sæti […]

Suðureyjalundi beit Ramsey

Eins og fram hefur komið áður hér á vefnum lenti breski kokkurinn Gordon Ramsey í því að verða bitinn af lunda í ferð sinni til Íslands. Ferðin til Vestmannaeyja var víst mikil ævintýraferð en nú er komið í ljós að Ramsey var bitinn af Suðureyjalunda enda eingöngu geðill kvikindi sem halda til í eynni. Hægt […]

Sjóbirtingur í �?jórsá fannst fimm árum eftir merkingu

Útvarpsmerktur sjóbirtingur endurheimtist í sumar, fimm árum eftir merkingu, við hefðbundnar rannsóknir Veiðimálastofnunar á lax- og sjóbirtingsafla úr netaveiði í Þjórsá. Í ljós kom að hann hafði verið merktur sem gönguseiði í Kálfá í Gnúpverjahreppi sumarið 2003, en merkingin hafði verið framkvæmd til að fylgjast með sjávargöngutíma laxa og sjóbirtinga. (meira…)

Stórhýsi undir �?ekkingarsetur

Áætlanir eru uppi um að byggja 2400 fm hús undir Þekkingarsetur Vestmannaeyja en mjög er farið að þrengja að starfseminni að Strandvegi 50, Hvíta húsinu. Þetta byggist fyrst og fremst á þarfagreiningu Ingibjargar Þór­halls­dóttur. Stefnt er að bygg­ingu á 2400 m2 húsi í miðbæ Vestmannaeyja. Þar er hugmynd­in að verði bæði Þekk­ingarsetrið og Sæheimar. (meira…)

Vantar leikskóla­pláss

„Staðan á leikskólum er þannig að hugsanlega náum við ekki að taka öll 18 mánaða börn inn á leikskóla en við leysum, það með því að fjölga daggæsluúræðum og þá bætast við allt að 16 daggæslupláss, sagði Jón Pétursson, fram­kvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs þegar hann var spurður út í stöðuna á leikskóla­plássum í Vestmannaeyjum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.