Leyfi til afnota af bílastæði fyrir matarvagn synjað

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni var tekin fyrir umsókn Hlyns Márs Jónssonar þar sem fyrir hönd Lundanns ehf. sækir um afnot af bílastæðaplani við hlið Lunands veitingahúss fyrir matarvagn 3. – 6. ágúst klukkan 11:00-20:00 hvern dag. Ráðið getur ekki orðið við erindinu og heimilar ekki afnot af bílastæðum utan lóðamarka umsækjenda. (meira…)
Veruleg áhrif komi til verkfalls

„Fyrirhugað verkfall skellur á hér í Eyjum í næstu viku. Þá mun starfsfólk leikskólans á Kirkjugerði leggja niður störf hálfan daginn, þann 22. maí, 23. maí og 25. maí,“ segir Unnur Sigmarsdóttir, formaður Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar, STAVEY um stöðuna komi til boðaðs verkfalls BSRB sem nær til Vestmannaeyja. Í vikunni þar á eftir nær boðað verkfall […]
Kórinn eldri borgara og vöfflukaffi á uppstigningardag

Við tökum uppstigningardag snemma í Landakirkja á fimmtudaginn nk. 18. maí en dagurinn er einnig messudagur eldri borgara. Messa hefst kl. 11:00 og mun kór eldri borgara undir stjórn Lalla syngja undir messunni sem sr. Viðar leiðir. Að lokinni athöfn býður Kvenfélag Landakirkju til vöfflukaffis. (meira…)
Iðunn hlaut hvatningarstyrk félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Þann 12. maí, á Alþjóðlegum degi hjúkrunarfræðinga hlaut Iðunn Dísa Jóhannesdóttir hvatningarstyrk að upphæð 500.000 kr. Styrkurinn er veittur árlega til framúrskarandi hjúkrunarfræðinga sem hafa haft áhrif á þróun hjúkrunar eða heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Styrknum er ætlað að styðja hjúkrunarfræðinga til að afla sér frekari þekkingar og/eða þjálfunar sem nýtist þeim til að þróa enn […]
Kjarasamningur við BHM undirritaður

Þann 15. maí s.l. skrifaði samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga undir kjarasamninga við átta aðildarfélög innan BHM. Félögin eru: Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félagsráðgjafafélag Íslands, Fræðagarður, Iðjuþjálfafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga og Þroskaþjálfafélag Íslands. Verði kjarasamningar samþykktir munu þeir gilda frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024. Samninganefnd sambandsins vill koma […]
Hvatningarverðlaun og samningar vegna Þróunarsjóðs

Hvatningarverðlaun fræðsluráðs voru afhent þann 15. maí við háðtíðlega athöfn í Einarsstofu. Við sama tækifæri voru samningar undirritaðir við þá sem hljóta styrki úr Þróunarsjóði leik- og grunnskóla. Aníta Jóhannsdóttir, formaður fræðsluráðs, afhenti verðlaunin og undirritaði samningana fyrir hönd fræðsluráðs. Hvatningarverðlaun fræðsluráðs voru afhent í fjórða sinn en markmiðið með þeim er að vekja athygli […]
Áhrif verkfalls á starfsemi stofnana í Vestmannaeyjum

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa nokkur aðildarfélög BSRB boðað til verkfalls vegna vinnudeilna í tengslum við gerð kjarasamninga. Þessar aðgerðir hafa m.a. áhrif á tvær stofnanir Vestmannaeyjabæjar, þ.e. Leikskólann Kirkjugerði og Vestmannaeyjahöfn. Stavey, Starfsmannafélag Vestmannaeyja, hefur boðað til verkfalls hjá félagsmönnum sínum í fyrrgreindum stofnunum. Náist ekki samkomulag milli viðsemjenda munu verkföllin […]
Ekki hægt að taka á móti flutninga- og skemmtiferðaskipum vegna verkfalls

Boðað hefur verið til verkfalls hjá starfsmönnum hafnarinnar sem eru í Stafey dagana 25. maí, 1. júní og 8. júní. Verkfallið hefur áhrif á ákveðna þætti í rekstri hafnarinnar eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vestmannaeyjahöfn. Ef af þessu verkfalli verður, þá verður ekki hægt að taka á móti flutninga- og skemmtiferðaskipum þessa […]
Vestmannaeyjabær tekur þátt í verkefni um Heilsueflandi samfélag

Kynning á Heilsueflandi samfélagi fór fram á fundi Fjölskyldu- og tómstundaráðs í liðinni viku en meginmarkmið þess er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Ráðið þakkaði í niðurstöðu sinni fyrir kynninguna og færir eftirfarandi til bókar. “Samfélagið í Vestmanneyjum ber sterk merki […]
Ótrúlega gaman að spila í Vestmannaeyjum

Íþróttavarp RÚV er með handboltaþema þessa vikuna og ræðir við Rúnar Kárason sem stendur í ströngu með liði ÍBV sem er komið í úrslit Olísdeildarinnar. Rúnar er á leið aftur í uppeldislið sitt Fram en hann settist niður með Eddu Sif Pálsdóttur og fór yfir langan og viðburðaríkan feril. Meðal annars ræðir hann um hve […]