Dagskrá 1. maí

1. maí verður haldinn hátíðlegur í AKÓGES með kaffisamsæti og dagskrá Dagskrá: Kl. 14.00 Húsið opnar Kl. 14:30 Kaffisamsæti 1. maí ávarp flutt Tónlistarskóli Vestmannaeyja sér um tónlistaratriðin. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Vestmannaeyja sendir launafólki hátíðar- og baráttukveðjur í tilefni dagsins. (meira…)
Humarveiðibann

Sigurgeir B. Kristgeirsson binni@vsv.is Áhugavert og upplýsandi viðtal sem Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöðinni tók við Jónas Pál Jónasson, Eyjamann og Skuldara sem er humarsérfræðingur Hafró. Viðtalið birtist í Bændablaðinu: Humarveiðar hafa verið stundaðar við Ísland frá 1950, fyrst eingöngu af erlendum skipum en rétt fyrir 1960 hófust humarveiðar Íslendinga við suðurströndina. Mest fór […]
Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2023

Tilkynnt verður um val á bæjarlistamanni Vestmannaeyja 2023 í Eldheimum mánudaginn 1. maí kl 11:00. Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs mun tilkynna um valið á bæjarlistamanni Vestmannaeyja 2023. Í framhaldi af því munu Skólalúðrasveit Vestmannaeyja leika nokkur lög. (meira…)
Stóri plokkdagurinn 2023

Stóri plokkdagurinn er í dag og í tilefni dagsins verður almennur hreinsunardagur á Heimaey. Hreinsum náttúruna um leið og við gerum umhverfið okkar fallegt fyrir viðburði, gesti og útiveru komandi sumars. Gaman er að gera daginn að fjölskyldudegi þar sem allir – mamma, pabbi, amma, afi, og krakkarnir – sameinast um að gera Heimaey enn […]
Gerðu út um leikinn á átta mínútum

ÍBV sótti þrjú mikilvæg stig í leik gegn Keflavík á útivelli í dag og lokatölur 1:3. Markalaust var í fyrri hálfleik en Keflavík tók forystu með marki á 66. mínútu. Það kveikti heldur betur í Eyjamönnum sem skoruðu þrjú mörk á átta mínútum. Hermann Þór reið á vaðið á 70. mínútu, þá var komið að […]
Góður sigur í fyrsta leik undanúrslitanna

Eyjakonur mættu Haukakonum í fyrsta leik undanúrslitanna í úrvalsdeild í Vestmannaeyjum í dag og höfðu betur, 29:22. Í hálfleik var staðan 12:10. Framan af í seinni hálfleik var jafnræði með liðunum en heimakonur tók öll völd á vellinum í síðari hlutanum og unnu verðskuldað með sjö mörkum. Hrafnhildur Hanna var frábær í leiknum og skoraði […]
Árleg vorhátíð Landakirkju á morgun

Landakirkja býður öllum bæjarbúum til árlegrar vorhátíðar sinnar á morgun sunnudaginn 30. apríl kl. 11:00. Að vanda verður boðið upp á fjöruga barnamessu en Sunday School Party Band mun leika undir. Að stundinni lokinni göngum við svo í kringum kirkjuna og í gegnum kirkjugarðinn og plokkum í tilefni af Stóra plokkdeginum. Sóknarnefnd býður öllum upp […]
Úrslitakeppnin hefst hjá stelpunum í dag
Í dag hefjast undanúrslit Olísdeildar kvenna. Stelpurnar okkar fá Hauka-konur í heimsókn og hefst leikurinn klukkan 16:40. Miðasala er hafin á miðasöluappinu Stubbur. Í hálfleik verður Krókódílum boðið upp á léttar veitingar. “Nú er ráð að koma sér í úrslitakeppnis-gírinn, mæta á leikinn og styðja ÍBV til sigurs!,” segir í tilkynningu frá ÍBV. (meira…)
Hafnarstarfsmenn og starfsfólk leikskóla í verkfall?

Á hádegi í dag, 28. apríl, hófst atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir BSRB félaga í Hafnafirði, Reykjanesbæ, Ölfus, Árborg, Hveragerði og Vestmannaeyjum, vegna kjaradeilu aðildarfélaga BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga. Kosningu lýkur á hádegi á fimmtudag 4. maí og verða niðurstöður kynntar í kjölfarið. Þetta kemur fram á heimasíðu BSRB Verði verkfallsboðun samþykkt mun starfsfólk leikskóla, grunnskóla, […]
Finnbjörn A. Hermannsson kjörinn forseti ASÍ
Finnbjörn A. Hermannsson var í dag kjörinn forseti ASÍ á 45. þingi Alþýðusambands Íslands. Finnbjörn var sjálfkjörinn í embættið og engin mótframboð bárust. Finnbjörn hefur áratuga reynslu af störfum í verkalýðshreyfingunni. Hann lét nýlega af störfum sem Formaður Byggiðnar, áður Trésmíðafélags Reykjavíkur þar sem hann hafði verið í forsvari í 26 ár. Þá voru kjörnir […]