Besta deild karla – ÍBV mætir Val á úti

Á morgun, tíunda apríl hefst keppnin í Bestu deild karla í knattspyrnu. ÍBV hefur leik á útivelli gegn Val og fyrsti heimaleikurinn á tímabilinu er gegn KA laugardaginn 15. apríl. Það er sérstakt til þess að hugsa að fótboltinn sé að rúlla af stað í ljósi þess fyrir fáeinum dögum var ökkladjúpur snjór yfir öllu […]

Vegur að Viðlagafjöru varasamur – Bílvelta

Lögreglan vill góðfúslega benda á erfiðar aksturs aðstæður á Eldfellsvegi við Viðlagafjöru. Síðastliðna nótt varð umferðarslys á Eldfellsvegi við Viðlagafjöru þar sem bifreið fór eina veltu, engin slys urðu á fólki. Eins og margir vita er jarðvegsvinna fyrir væntanlegt fiskeldi hafin á staðnum og eru aðstæður til aksturs orðnar erfiðari og þá sérstaklega þegar byrjar að […]

Fjórar Eyjakonur í eldlínunni

Þjálfarateymi A landsliðs kvenna hefur valið þá 16 leikmenn sem mæta Ungverjalandi í undankeppni HM 2023. Leikurinn hefst kl. 16:00 að Ásvöllum og er frítt inn í boði Icelandair, leikurinn er í beinni útseningu á RÚV og hefst upphitun á HM stofunni 15:40. Í hópnum eru tvær af bikar- og deildarmeisturum ÍBV, þær Hrafnhildur Hanna […]

Páskaballi Hallarinnar aflýst

Páskaballi Hallarinnar aflýst! Vegna ótraustra samgangna neyðumst við til að aflýsa Páskaballi Hallarinnar. Allir sem keypt höfðu miða af Tix munu fá póst og miðann endurgreiddan. Gleðilega páska! (meira…)

Herjólfur – Viðgerðarstopp vegna bilunar

„Umræða hefur skapast um af hverju nýttur er laugardagur á páskum til þess að hafa viðhaldsstopp. Ástæða þess er sú að bilun sem kom upp fyrir stuttu í rafkerfi skipsins hefur valdið því að ekki hefur verið hægt að sigla skipinu með fullu afli. Mjög mikilvægt er að vera með fullt afl og fulla stjórn […]

Byggð, mannlíf, götur og hús í Eyjum

Í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá stofnun Visku og  50 ár frá eldgosinu á Heimaey 1973 varð að ráði að Viska og Safnahús Vestmannaeyja efndu til sameiginlegs afmælisverkefnis. Verkefnið sem var í senn námskeið og verkefnavinna fjallaði um Byggð, skipulag, mannlíf, götur og hús í Eyjum.  Verkefnið er sjálfstætt framhald námskeiða Visku um Húsin í […]

Yfirlitssýning á verkum Gísla J. í Bókasafni Kópavogs

Sigga Vigga, eitt af sköpunarverkum Gísla J. Á annan í páskum, 11. apríl  lýkur yfirlitssýningu á verkum Gísla J. Ástþórssonar á 1. hæð Bókasafns Kópavogs. Gísli J. Ástþórsson (1923-2012) var þekktur á sinni tíð sem blaðamaður, ritstjóri, rithöfundur, pistlahöfundur og teiknari. Gísli lærði blaðamennsku í háskóla í Bandaríkjunum árin 1943 til 1945 og var sennilega […]

Erlendur kafari hitti fyrir loðnutorfu í Eyjafirði

Erlendur Bogason kafari skráir sig á spjöld (loðnu)sögunnar í annað sinn. Hann náði einstæðum myndum af loðnutorfu úti fyrir Snæfellsnesi í mars 2021. Vinnslustöðin gerði hann út í þann leiðangur og myndband úr hafdjúpinu vakti verðskuldaða athygli þegar það var sýnt í fréttatíma Stöðvar tvö. Ýmsir töldu að til dæmis líffræðingar og fiskifræðingar á Hafró […]

Eyjamenn skelltu Haukum með 13 mörkum

ÍBV fór á kostum í Olísdeild karla á heimavelli í kvöld, tók Hauka í kennstund. Lauk leiknum með 13 marka mun, 37:24. Eyjamenn sitja í þriðja sæti með 28 stig þegar ein umferð er eftir í deildinni. FH er í öðru sæti með 30 stig en Valsmenn, sem taka á móti ÍBV í síðustu umferð […]

Eyjafréttir i dag og stútfullar af efni

Sjöunda tölublaði Eyjafrétta þetta árið er dreift í dag og er að venju fjölbreytt að efni. Eðlilega fá fermingar framundan mikið pláss enda stór stund bæði hjá börnum og fjölskyldum þeirra. Hörður í Þekkingarsetrinu heldur áfram í rauðátuverkefninu sem gæti orðið mikið ævintýri. Leikfélagið frumsýnir Rocky Horror á morgun og þar er ekki ráðist á […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.