Besta deild karla – ÍBV mætir Val á úti

Á morgun, tíunda apríl hefst keppnin í Bestu deild karla í knattspyrnu. ÍBV hefur leik á útivelli gegn Val og fyrsti heimaleikurinn á tímabilinu er gegn KA laugardaginn 15. apríl.

Það er sérstakt til þess að hugsa að fótboltinn sé að rúlla af stað í ljósi þess fyrir fáeinum dögum var ökkladjúpur snjór yfir öllu á Heimaey. ÍBV liðið virðist koma vel undan vetri ef marka má framgöngu liðsins í Lengjubikarnum en ÍBV komst í undanúrslit A-deildar Lengjubikarsins eftir að strákarnir unnu alla fjóra leiki sína í riðlinum.

Þar mættu ÍBV strákarnir KA í undanúrslitum og féllu að lokum út í vítaspyrnukeppni.

Eyjafréttir tóku hús á þjálfara og fyrirliða liðsins auk þess að kynna leikmannahópinn fyrir lesendum í síðasta blaði Eyjafrétta.

ÍBV í leik gegn Stjörnunni síðasta sumar.

 

Mynd Sigfús Gunnar.

 

Nýjustu fréttir

Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.