Volare ehf og Heimaey ehf kaupa Vesturveg 10

Volare ehf. og Heimaey ehf. hafa fest kaup á húsnæðinu við Vesturveg 10 en þar hefur húsgagnaverslunin Reynisstaður verið til húsa frá því að húsið var byggt árið 1984. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu sem fyrirtækin þrjú sendu frá sér og lesa má hér að neðan. (meira…)

Íþróttamaður ársins í kvöld

Í kvöld klukkan 20 verður viðurkenningahátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja og Vestmannaeyjabæjar haldið í íþróttamiðstöðinni en þar verða veittar viðurkenningar fyrir afrek á árinu 2007. Hvert aðildarfélag innan héraðssambandsins tilnefnir leikmann ársins hjá sér en auk þess verða afhent verðlaunin íþróttamaður æskunnar og svo að sjálfsögðu íþróttamaður ársins. (meira…)

Vaktin komin í dreifingu

Nýjasta tölublað Vaktarinnar er nú á leiðinni inn á hvert heimili í Vestmannaeyjum. Í blaðinu kennir margra grasa og þar sem Þakkargjörðarhátíðin verður haldin næstkomandi miðvikudag er eldgosið 1973 áberandi í blaðinu. M.a. er rætt við Sigurgeir Jónasson, ljósmyndara sem myndaði eldsumbrotin í bak og fyrir. Þá er einnig rætt við Öldu Björnsdóttur, sem dreymdi […]

Hver að verða síðastur til að taka þátt í Peyjabankanum

Eins og undanfarin ár setja strákarnir í handboltaliði ÍBV af stað Peyjabankann svokallaða þegar stórmót fer fram í handbolta. Evrópumótið hefst einmitt í dag og fyrstu leikirnir fara fram klukkan fimm. Um leið lokar Peyjabankinn og því fer hver að verða síðastur til að skrá sig. Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV hefur yfirumsjón með bankanum og […]

Elding olli tjóni uppi á Klifi

Það brá mörgum í brún um hádegisbil í gær þegar eldingu laust niður í Klifið sem gnæfir yfir höfnina í Vestmannaeyjum með tilheyrandi drunum. Eftirköstin komu fljótlega í ljós en nokkur fyrirtæki á hafnarsvæðinu eru símasambandslaus. Þá urðu skemmdir uppi á Klifi en þar er móttökubúnaður og útsendingabúnaður fyrir m.a. sjónvarp, útvarp og fleira. Unnið […]

Við þökkum lífgjöfina 23. janúar 1973

Aldrei má það gleymast meðan land byggist það kraftaverk sem varð þá nótt þegar jörðin opnaðist austan við Kirkjubæi og jarðeldar ógnuðu lífi og byggð hér í Eyjum. Þegar röð atvika verður til þessa að allir bjargast þessa ­örlaganótt. Það er bræla allan daginn þann 22. janúar, allur flotinn í höfn, svo lygnir skyndilega um […]

Stofnun �?ekk­ingarseturs

Á fundi bæjarráðs var tekin fyrir ósk starfshóps um eflingu há­skóla- og rannsóknastarfsemi í Vest­mannaeyjum, um að Vestmannaeyjabær gerist stofn­að­ili að Þekkingarsetri Vest­manna­eyja með 300 þúsund kr. stofnframlagi. Bæjarráð samþykkir að gerast stofnaðili að Þekkingarsetri Vest­mannaeyja með 300 þúsund kr. stofnfram­lagi og hvetur aðra framsækna aðila til þátttöku. (meira…)

Gangarannsóknir, ný stefna í skipalyftumálinu og sanngjarnari gjaldskrá Herjólfs

Þrír stjórnmálaflokkar, stjórnar­flokk­arnir Samfylking og Sjálf­stæðis­flokkur og Frjálslyndir, sem eru í stjórnarandstöðu með Vinstri grænum og Framsókn, héldu fundi hér á fimmtudag, laugardag og sunnu­dag. Víða var komið við og það sem mesta athygli vakti var ný staða í málum Skipalyftunnar, loforð fjármálaráðherra um fjármagn til að ljúka rannsóknum vegna ganga og upplýsingar samgöngu­ráðherra um […]

Selja stóðhestastöð og kaupa Hjörleifshöfða

Í nýsamþykktum fjárlögum er fjármálaráðherra heimilað að selja stóðhestastöðina í Gunnarsholti ásamt landspildum við stöðina og ráðstafa andvirðinu til Hekluskóga og til uppbyggingar á landsmótssvæðinu á Gaddstaðaflötum. Í greinargerð kemur fram að allt að 80 milljónir renni til uppbyggingar á Gaddstaðaflötum með þessu móti en það sem þá verður afgangs til Hekluskóga. Ráðherrum er ekki […]

. . . koma til okkar til þess að fá að spila eitthvað skemmtilegt

Önnur önn Tónsmiðju Stefáns er nú að hefjast. Stefán Þorleifsson, yfirsmiður, segir marga spennandi hluti í gangi í tónsmiðjunni og það skemmtilega sé að þeir nemendur sem komu inn í skólann í haust haldi allflestir áfram á komandi önn. „Við náum að viðhalda áhuga nemendanna samhliða því að auka getu þeirra. Fyrir vikið þyrstir nemandann […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.