Lífsýni í nauðgunarmáli jákvætt

Niðurstaða í rannsóknum lífsýna úr karlmanni sem grunaður er um að hafa nauðgað ungri konu í Vestmannaeyjum í september síðastliðnum bendir eindregið til þess að hann hafi átt þar hlut að máli. Þetta staðfestir Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri á Selfossi. (meira…)
Ekki tilefni til lagabreytinga

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að hann teldi ekki að nýr úrskurður mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um kvótakerfið gæfi tilefni til lagabreytinga hér á landi. Geir var að svara fyrirspurn frá Guðjóni A. Kristjánssyni, þingmanni Frjálslynda flokksins. Hann sagði, að álit mannréttindanefndarinnar væri ekki bindandi að þjóðarrétti og veitti ekki vísbendingar um […]
�?rskurður mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna

Úrskurður mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, sem staðsettur er í borginni Genf í Sviss, hefur sem kunnugt er úrskurðað tveimur íslenskum sjómönnum í vil, í máli þeirra gegn íslenska ríkinu. Úrskurðurinn hefur af eðlilegum ástæðum vakið mikið umtal hérlendis og sýnist sitt hverjum. (meira…)
Allt á kafi í snjó

Talsverður snjór er í Vestmannaeyjum nú í morgunsárið og var Björgunarfélag Vestmannaeyja kallað út til aðstoðar fólki sem sat fast í bílum sínum. „Við erum ennþá að kippa í bíla, sérstaklega hérna í efri byggðum þar sem ekki er búið að ryðja. Við vorum kallaðir út um hálf sex í morgun og um sjö var […]
Skemmdarverk, eldur, umferðarlagabrot og ólögleg notkun þokuljósa

Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið vegna hinna ýmsu mála sem rötuðu inn á hennar borð. Tvö eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið. Í öðru tilvikinu var um að ræða skemmdir á hópbifreið sem lagt var vestan við verslunina Tvistinn. Um er að ræða rispur á annarri hlið […]
Miðasala á Whitesnake hafin

Miðasala á stórtónleika Whitesnake í Laugardalshöll þann 10 júní hefst föstudaginn 18 janúar kl 10:00 á www.mida.is og í verslunum Skífunar og BT úti á landi. Ath! aðeins þessir einu tónleikar. Lesa má um stórsveitina Whitesnake hér að neðan. (meira…)
mgöngumálaráðherra á starfsmönnum siglingamálastofnunnar

þá mun ekkert annað gerast í samgöngumálum okkar. Svo er nema furða þó maður hafi gengið frekar dapur í bragði af þessum fundi (meira…)
Mikil síld veiddist í desember

Heildaraflinn í nýliðnum desember var 77.295 tonn. Það er rúmlega 5 þúsund tonnum meiri afli en í desember 2006, þá var aflinn 71.919 tonn. Munar þar langmestu um mikla síldveiði. Heildarafli ársins 2007 var 1.398 þúsund tonn sem er 74 þúsund tonnum meiri afli en 2006. Aukning afla milli ára stafar af rúmlega 14 þúsund […]
�?að hefur fallið dómur
Nýverið hafa fallið tveir dómar sem snerta Eyjamenn nokkuð. Annars vegar nýlegur dómur mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um kvótakerfið og hins vegar dómur héraðsdóms Suðurlands um akstur um borð í Herjólfi. Svolítið langt á milli þessara dómstóla… (meira…)
Magnaður endasprettur tryggði Eyjamönnum sigur

Það var svo sannarlega dramatík í leik ÍBV og Laugdæla sem fór fram í 2. deildinni í dag en úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengdan leik. Laugdælir voru mun sterkari lengst af, Eyjamenn leiddu reyndar eftir fyrsta leikhluta 20:16 en fyrir síðasta leikhluta höfðu gestirnir 15 stiga forystu. Eyjamenn bitu þá í skjaldarrendur, tryggðu […]