Opinn fundur með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins

Árni M. Mathiesn fjármálaráðherra og aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi verða á opnum fundi í Vestmannaeyjum í dag, laugardag. Fundurinn er haldinn í Akoges og hefst kl. 15. Farið verður yfir stjórnmálaástandið og horfur framundan og gefst fundarmönnum tækifæri til að hitta á sína þingmenn og ræða málin. (meira…)

Körfubolti um helgina

Eins og flestir vita er nú hlé á Íslandsmótinu í handbolta þar sem íslenska karlalandsliðið tekur þátt í Evrópumótinu í Noregi, sem hefst í næstu viku. Þá sem þyrstir í að horfa á kapp­leik geta hins vegar svalað þorstanum með því að líta á leik ÍBV og Laugdæla en liðin munu mætast í Vestmanna­eyjum á […]

Kvennalið Gróttu tók áskorun Hlyns Sigmarssonar

Kvennalið Gróttu og Hlynur Sigmarsson hafa ákveðið að hafa með sér keppni um það hvort að Hlynur missi fleirri kg en þau stig sem Grótta fær eftir áramót í N1 deild kvenna. Uppgjör keppninnar miðast við lokahóf HSÍ eða fyrr ef annar aðilinn getur sýnt fram á sigur fyrir þann tíma. Grótta á eftir að […]

ÍBV fær þrjá Brasilíumenn til reynslu

Þrír brasilískir leikmenn munu koma til ÍBV á reynslu í næstu viku en um er að ræða tvo miðjumenn og einn framherja. ,,Þeir koma hingað á reynslu í næstu viku, við ætlum að skoða þá í mánuð og sjá hvað þeir geta. Síðan kemur í ljós hvort við semjum við einn, tvo, þá alla eða […]

Kvótaúrskurður ekki bindandi

Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, segir álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna ekki vera bindandi. Nefndin tók fyrir mál tveggja sjómanna og niðurstaðan er að íslenskum stjórnvöldum beri að endurskoða fiskveiðistjórnkerfið og bæta mönnunum tjón sem þeir hafi orðið fyrir, þar sem þeim var synjað um veiðiheimildir. (meira…)

Vaktin á leið inn í hvert hús í Eyjum

Nú er 1. tölublað Vaktarinnar á leið inn í hvert hús í Vestmannaeyjum en í blaði vikunnar er margt forvitnilegt lesefni. Vilhelm G. Kristinsson ræðir við Ragnar Guðmundsson, Ragga rakara sem nýverið seldi syni sínum, Viktori rekstur Rakarastofunnar en Raggi hyggst starfa áfram á stofunni við hlið sonarins. Leikfélag Vestmannaeyja ætlar að setja upp söngleikinn […]

Guðrún tekur við formennsku Samfylkingarfélags Vestmannaeyja

Á nýloknum stjórnarfundi Samfylkingarfélags Vestmannaeyja var Guðrún Erlingsdóttir kosin formaður félagsins í stað Björns Elíassonar. Samfylkingarfélag Vestmannaeyja hefur starfsemi árið 2008 með félagsfundi sunnudaginn 13. janúar í Höllinni kl. 18.30 -19.45. Kristján Möller, Björgvin G. Sigurðsson og Lúðvík Bergvinsson mæta til skrafs og ráðagerða við félagsmenn. Boðið verður uppá humarsúpu að hætti Gríms kokks. (meira…)

Frjálslyndir funda í kvöld

Frjálslyndi flokkurinn heldur opinn fund á Kaffi Kró í kvöld, fimmtudag en fundurinn hefst klukkan 20.00. Á fundinn mæta Grétar Mar Jónsson, alþingismaður, Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins og Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Kvenfélags Frjálslyndaflokksins. (meira…)

Töpuðu nokkuð örugglega gegn MK

Óhætt er að segja að lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum hafi ekki riðið feitum hesti frá viðureign sinni gegn Menntaskólanum í Kópavogi í spurningakeppninni Gettu betur í kvöld. Lokatölur urðu 33:8 MK í vil sem er því komið áfram 2. umferð en FÍV situr eftir. (meira…)

FÍV mætir MK í kvöld

Í kvöld, klukkan 21:00 mætir lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum liði Menntaskólans í Kópavogi í keppninni Gettu Betur á Rás 2. Útsending hefst klukkan 20:00 en um erfiða viðureign er að ræða fyrir Eyjamenn enda varð MK í öðru sæti í keppninni í fyrra. Um er að ræða fyrstu umferð keppninnar en tvær umferðir fara fram […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.