Mikil gleði á fjölmennri �?rettándagleði

Jólin voru kvödd í gærkvöldi í Vestmannaeyjum, einum degi fyrr en venjulega. Það sló hins vegar ekkert á gleðina enda veðrið einstaklega gott sem gerir hátíðina enn skemmtilegri. Fjölmenni fylgdi jólasveinum og hyski þeirra til fjalla en líklega hafa um 3000 manns tekið þátt í gleðinni. Hægt er að skoða myndir Óskars Péturs Friðrikssonar, bæði […]
ÍBV hafði betur gegn KFS í gær
KFS tók á móti ÍBV í Íslandsmótinu í Futsal í gær í íþróttamiðstöðinni. Liðin höfðu áður mæst á sama stað, sem þá var heimaleikur ÍBV og endaði sá leikur með stórsigri ÍBV 11:4. KFS lék hins vegar mun betur í gær en tapaði þó 6:4. (meira…)
Skítalabbar í skemmdarverkum

Hún var ófögur sjónin sem blasti við eftirlitsmanni fasteigna Vestmannaeyjabæjar, þegar hann var á sinni venjubundu eftirlitsferð í morgun. Búið var að sprengja upp hurð á salerninu á Skansinum, – ekki nóg með það. Heldur hafði sprengju verið komið fyrir ofan í salerniskálinni með tilheyrandi skemmdum. (meira…)
Fyrsti Eyjamaðurinn fæddist á nýársdag

Fyrsta barnið sem kom í heiminn í Vestmannaeyjum árið 2008 lét ekki bíða eftir sér en það kom í heiminn á miðjum fyrsta degi ársins eða klukkan hálf fjögur 1. janúar. Um var að ræða stúlku sem var rúmlega 4 kg og 52 sentímetrar við fæðinguna. Foreldrar stúlkunnar eru þau Barbara Zielenda og Mariusz Przemyslaw […]
Samhugur og samstaða
Eitt megineinkenni uppgangstímabila í Vestmannaeyjum er samhugur og samstaða. Má þar nefna til marks stofnun Bátaábyrgðarfélags Vestmannaeyja 1862, lagningu sæsímastrengs og bæjarlagnar 1911 og rafvæðingu skömmu síðar. Þá er glæsilegur vitnisburður um samtakamáttinn er Eyjamenn keyptu einir og sjálfir fyrsta björgunar og varðskip Íslandinga 1920. Samstarf í bátakaupum og fiskvinnslu einkenndi meginhluta tuttugustu aldar. (meira…)
�?rettándagleði með hefðbundnu sniði

Þrettándagleði ÍBV-íþróttafélags hefst á Hánni klukkan 19.00 á morgun, laugardag en að þessu sinni fara hátíðahöldin fram 5. janúar, degi fyrr en venjulega. Hátíðahöldin verða með hefðbundnu sniði. Bæjarbúar taka á móti jólasveinunum þegar þeir koma ofan af Molda og fylgja þeim upp á malarvöll þar sem kveikt verður í brennu og álfar og púkar […]
Gaujulundur, Skólalúðrasveitin, �?skar í Stórhöfða, Bókasafnið og Vosbúð hlutu styrki

Árleg úthlutun úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra, fór fram á dögunum. Er þetta í tuttugasta skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum, en fyrsta úthlutunin var á Þorláksmessu árið 1988. Að þessu sinni hlutu styrkina Gaujulundur, Skólalúðrasveitin, Óskar Sigurðsson vitavörður í Stórhöfða, Bókasafn Vestmannaeyja […]
Áhersla lögð á að viðhalda ógeðfelldri mynd arðræningja og kvótabraskara

Elliði Vignisson, bæjarstjóri hélt kröftuga ræðu við afhendinguna á Fréttapýramídanum sem fór fram á miðvikudaginn. Elliði sneri spjótum sínum m.a. að því umhverfi sem sjávarútvegsfyrirtækjum er búið og segir opinbera einkaaðila leggja áherslu að viðhalda ógeðfelldri mynd arðræningja og kvótabraskara. Þessi neikvæða ímynd hefur síðan stutt Alþingi í að beita sértækum skatti og álögum á […]
Grýla og barnakór í safninu á Stokkseyri

Á þrettándanum, sunnudaginn 6. janúar, fara margar þjóðsagnarverur á kreik og Álfa,- trölla- og norðurljósasafnið á Stokkseyri mun iða af lífi. (meira…)
�?rjár frá ÍBV á U-16 ára landsliðsæfingar

Þrjár ungar og efnilegar handknattleiksstúlkur úr ÍBV, þær Vigdís Svavarsdóttir, Kataryna Hlynsdóttir og Rakel Hlynsdóttir, hafa verið kallaðar á æfingar hjá U-16 ára landsliði Íslands sem fara fram á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Alls voru 56 stúlkur valdar til að taka þátt í æfingunum og þurfa Eyjastúlkurnar því að sýna sitt allra besta strax á fyrstu […]