Sérsveitin kölluð á Draugabarinn

Aðfaranótt sunnudags kom til átaka milli lögreglu og gesta á Draugabarnum á Stokkseyri. Leitað var eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra en þegar sú aðstoð barst var mönnum runnin reiðin. (meira…)

Sparisjóður Vestmannaeyja og ÍBV í samstarf

Í dag var undirritaður samsstarfssamningur milli ÍBV og Sparisjóðs Vestmannaeyja en skrifað var undir samninginn í húsnæði Sparisjóðsins. Sparisjóðurinn er einmitt 65 ára í dag og því viðeigandi að gera stærsta samstarfssamning við ÍBV að því tilefni. Fréttatilkynning sem send var út af þessu tilefni má lesa hér að neðan. (meira…)

Sigur og tap um helgina

Meistaraflokkur tapaði fyrir Mostra 51-55 á laugardag, staðan í hálfleik var 22-21 fyrir ÍBV. Bjössi meiddist á ökkla eftir aðeins 3 mínútur og spilaði ekki meira með. Addi var í villuvandræðum strax eftir 1. leikhluta og fór út af með 5 villur í byrjun 4. leikhluta. Binni var skástur hjá okkar mönnum í leiknum. Ekki […]

Hafnarstemmning í Eyjum

Egill Egilsson var á morgungöngu eldsnemma í morgun og tók þessa þessa fallegu hafnarstemmningu í mynd. Ljósin sem lýsa Heimaklett upp í skammdeginu slá allt út og veita dulúðugri birtu yfir hafnarsvæðið. (meira…)

Sigurður Ari skoraði átta

Sigurður Ari Stefánsson var markahæstur hjá Elverum með átta mörk þegar liðið vann stórsigur á Kragerø, 39:26, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Ingimundar Ingimundarson skoraði fjögur mörk fyrir Elverum en Samúel Ívar Árnason komst ekki á blað hjá liðinu, sem Axel Stefánsson þjálfar. Magnús Ísak Ásbergsson skoraði fimm marka Kragerøliðsins. Elverum er í […]

HK gjörsigraði IBV

HK vann mjög öruggan sigur á ÍBV, 36:22, í úrvalsdeild karla í handknattleik en leikurinn fór fór fram í Digranesi í dag. (meira…)

Næstum alltaf blíða í Eyjum

Eftir mörg stormviðrin undanfarna daga, skarta Eyjar sínu fegursta í dag. Hæg norðlæg átt, léttskýjað og eins stigs frost. Þessa fallegu mynd tók Egill Egilsson í morgun og eins og sést þá blaktir íslenski fáninn ekki að þessu sinni, heldur hangir makindalega með flaggstönginni. (meira…)

Aðventukaffi og basar í Landakirkju á sunnudag

Í dag, sunnudaginn 2. desember klukkan 15.00 heldur Kvenfélagið í Landakirkju sinn árlega basar og aðventukaffi í Safnaðarheimilinu. Basarmunir eru til sýnis í glugga VÍS við Skólaveg. Einnig verður hlutavelta í anddyri Safnaðarheimilisins. (meira…)

Selfoss mun taka vörur til Eyja næsta fimmtudag

Þar sem Herjólfur þarf að fara í slipp næsta þriðjudag, mun m.s. Selfoss flytja vörur til Eyja næsta fimmtudag. Varan þarf að koma inn á afgreiðslu Eimskips fyrir klukkan 16:00 n.k. miðvikudag 5. desember. Selfoss verður síðan í Vestmannaeyjum n.k. fimmtudagsmorgun 6. desember. Í næstu viku er ráðgert að Herjólfur fari í slipp í tvo […]

Hraðahindranir fyrir þá sem engu tauti verður við komið

Þær geta verið ansi hvimleiðar þessar hraðahindranir út og suður. – En hafa sinn tilgang, og þegar menn geta ekki ekið eins og menn, þá er ein af lausnunum að setja hraðahindranir á vegi. Sumar eru bara ágætar, aðrar ekki eins góðar. Hér er ein tegund hraðahindrunar, fyrir þá sem engu tauti verður við komið. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.