Meistaraflokkur tapaði fyrir Mostra 51-55 á laugardag, staðan í hálfleik var 22-21 fyrir ÍBV. Bjössi meiddist á ökkla eftir aðeins 3 mínútur og spilaði ekki meira með. Addi var í villuvandræðum strax eftir 1. leikhluta og fór út af með 5 villur í byrjun 4. leikhluta. Binni var skástur hjá okkar mönnum í leiknum. Ekki það sem menn ætluðu sér, að tapa þessum leik.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst