Platan ber nafnið Sólarlag – lögin hennar Rúnu. Rúna er gælunafn Guðrúnar Erlingsdóttur, sem er útgefandi og höfundur allra 19 laga og texta á vínylalbúminu Sólarlag. Nafnið fékk hún frá ömmu sinni, Guðrúnu Maríasdóttur, sem fæddist 19. júní 1914.
„Það er við hæfi að gefa plötuna út á kvenréttindadaginn 19. júní, hátíðar- og baráttudegi kvenna. Ég vil þakka þeim konum sem ruddu brautina og gáfu okkur sem á eftir komum tækifæri til að láta ljós okkar skína og lifa draumana,“ segir Guðrún.
Útgáfutónleikar í Eldheimum
Útgáfutónleikar verða haldnir í Eldheimum í Vestmannaeyjum 3. júlí, á goslokahátíðinni. Þar ólst Guðrún upp og bjó fyrstu 50 ár ævi sinnar. „Eftir því sem ég kemst næst hafa ekki mörg vínylalbúm komið út þar sem einn og sami aðilinn á öll lög og texta. Það er ekki ólíklegt að færri konur en karlar séu í þeim hópi,“ segir Guðrún og vonast til að lögin fái góðar viðtökur.
Á Sólarlagi er að finna fjölbreytta tónlist, meðal annars rokk, blús, djass, vals, ljúfar melódíur, gospel og sálma. „Með lögunum er hægt að ferðast til Vestmannaeyja með Havaí-ívafi, til Spánar, Frakklands og Noregs eða fara í slökunarferðalag, svo eitthvað sé nefnt,“ segir hún.
Fjölskylduverkefni
Sólarlag var tekið upp í Stúdíó Paradís. Feðgarnir Jóhann Ásmundsson og Ásmundur Jóhannsson leika á bassa og trommur, Sigurgeir Sigmundsson leikur á gítar og Arnór Vilbergsson, organisti við Keflavíkurkirkju, sér um hljómborðsleik. Matthías V. Baldursson leikur á saxófón í einu lagi og Snorri Sigurðarson á trompet í öðru.
Söngvarar á plötunni eru Drífa Nadía Thoroddsen, Guðrún Erlingsdóttir, Jóhanna Björk Gylfadóttir, Kolbrún Shalini Árnadóttir, Tómas Guðmundsson, Áslaug Helga Hálfdánardóttir, Sísí Ástþórsdóttir, Gugga Lísa (Guðbjörg Elísa Hafsteinsdóttir), Barnakór Keflavíkurkirkju og Helga Möller.
„Sólarlag er fjölskylduverkefni. Eiginmaður minn, Gylfi Sigurðsson var sérlegur aðstoðarmaður í útgáfuferlinu. Eldri dóttir okkar, Bjartey, málaði verkið sem prýðir forsíðu albúmsins. Yngri dóttirin, Jóhanna Björk, syngur eitt lag með móður sinni og tengdasonurinn, Þórir Helgi Hallgrímsson, hannaði plötuumslagið,“ segir Guðrún.
Sólarlag kemur út á vínylplötu, geisladiski og á stafrænum tónlistarveitum.