Baldur verður áfram í Eyjum
Baldur á leið til Eyja. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Ferjuleiðir ehf. hefur tilkynnt að Baldur verði áfram í siglingum milli lands og Vestmannaeyja fram í miðjan júlí að ósk Vegagerðarinnar.

Í tilkynningu félagsins á samfélagsmiðlum kemur fram að Vegagerðin hafi farið fram á að ferjan verði lengur í Vestmannaeyjum en upphaflega var ráðgert. Baldur mun því sinna áætlunarferðum milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja þar til viðgerð á Herjólfi lýkur.

Áætlað er að viðgerð á Herjólfi ljúki um miðjan júlí. Ferjuleiðir benda á að Baldur sé í eigu Vegagerðarinnar sem geti, þegar aðstæður krefjist, ráðstafað skipinu til siglinga til og frá Vestmannaeyjum.

Í tilkynningunni biðst félagið afsökunar á þeim óþægindum sem breytingarnar kunna að valda farþegum á Breiðafirði. Haft verður samband við alla þá sem eiga bókað í ferðir með Baldri á því tímabili sem um ræðir. Þá kemur fram að farþegabáturinn Særún muni áfram sinna siglingum til og frá Flatey.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.