Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Bergey 20251009 102412
Bergey á leið úr höfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir um helgina og í byrjun vikunnar. Vestmannaey landaði fullfermi af karfa í Grindavík á sunnudaginn og síðan blönduðum afla í Eyjum strax á mánudag. Bergey landaði fullfermi af blönduðum afla í Eyjum á þriðjudag. Rætt er stuttlega við skipstjórana um aflabrögðin á vef Síldarvinnslunnar.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að karfaveiðin hefði gengið vel. „Við veiddum karfann í Sparisjóðnum í Skerjadýpinu og þar fékkst stór og flottur karfi. Að lokinni löndun fórum við og tókum þrjú hol á Pétursey og Vík. Síðan var haldið til Eyja og landað þar 23 tonnum af blönduðum afla,” sagði Egill Guðni.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði að aflinn í veiðiferð þeirra hefði verið mjög blandaður. „Þetta voru mest fjórar tegundir og var nánast jafnt af hverri þeirra. Þetta voru steinbítur, ufsi, ýsa og koli. Við hófum veiðar á Öræfagrunni en síðan var haldið á Mýragrunn, þaðan á Skerbleyðuna og loks á Pétursey og Vík. Veður var gott mest allan tímann en undir lokin jókst vindur og var 15 -18 metrar. Þetta var ágætur blandaður túr og við kvörtum ekki,” sagði Ragnar Waage. Bæði skip halda til veiða á ný í dag.

Nýjustu fréttir

Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.