Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Fyrstu kjarnasýnin hafa nú komið upp úr rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi. Fyrstu greiningar benda til þess að þar sé um olivínbasalt að ræða. Ljósmynd/Eyjagöng.

Fyrstu kjarnasýnin hafa nú komið upp úr rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi, sem er hluti af þeim jarðfræðirannsóknum sem unnið er að vegna mögulegra Eyjaganga. Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Eyjaganga.

Samkvæmt upplýsingum frá Eyjagöngum náðist mikilvægur áfangi í dag þegar borinn fór í gegnum sandlögin á svæðinu og niður í fast berg. Fyrstu kjarnasýnin voru þá tekin upp úr holunni.

Fast berg á 41,5 metra dýpi

Rannsóknarholan hefur verið fóðruð niður á 41 metra dýpi til að tryggja stöðugleika í gegnum laus sandlög Landeyjasands. Að sögn Eyjaganga tók fast klettalag við á 41,5 metra dýpi.

Fyrstu greiningar á kjarnasýnunum benda til þess að þar sé um olivínbasalt að ræða.

Hagstæð berggerð fyrir jarðgöng

Í frétt Eyjaganga kemur fram að olivínbasalt sé þétt og sterkt blágrýti sem almennt telst hagstætt þegar kemur að jarðgangagerð. Slík berglög geti veitt góða samfellu og stöðugleika við frekari rannsóknir og hugsanlegar framkvæmdir.

Kjarnasýnin sem nú hafa fengist munu verða hluti af frekari greiningum sem eiga að varpa ljósi á jarðlagaskipan á fyrirhugaðri leið milli lands og Vestmannaeyja.

Mikilvæg gögn fyrir áframhaldandi rannsóknir

Rannsóknarholan EG-02 er önnur kjarnaborun verkefnisins. Fyrri holunni, EG-01 á Eiðinu í Vestmannaeyjum, lauk fyrr í þessum mánuði.

Samkvæmt Eyjagöngum munu gögnin sem safnast í boruninni nýtast verkfræðingum og jarðfræðingum við áframhaldandi mat á fýsileika jarðganga, hönnun mannvirkja og áhættugreiningu verkefnisins.

Borun heldur áfram á næstu dögum og verða frekari niðurstöður kynntar eftir því sem fleiri sýni koma upp úr holunni.

Nýjustu fréttir

Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.