​Byggjum upp framtíðina
Hallgrímur Rögnvaldsson

Aðsend grein

Hallgrímur Rögnvaldsson

Nú hefur nýr meirihluti tekið við – meirihluti Sjálfstæðisflokksins. Ég vona að þessi góði hópur sem kosinn var til að fara með völdin taki sér það vald sem bæjarbúar fólu þeim, en láti ekki e​mbættismenn taka sér of mikið vald í hendur. ​Kjörnir fulltrúar​: ykkur var falið valdið, setjið mark ykkar á stjórnun bæjarins.

Það sama var upp á teningnum í Rangárþingi eystra, þar fer Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta, með Anton Kára, þann góða mann, við stjórnvölinn.

Nú er tækifæri. Þið hljótið að geta stigið í takt í þeim stóru ákvörðunum sem taka þarf á næstu fjórum árum – ákvörðunum sem eiga eftir að móta þessi samfélög næstu hundrað árin. Eyjagöng eru komin yfir, tvö-núll í hálfleik. Vonandi kemur gott út úr seinni hluta rannsókna sem fara fram í sumar.

Ég er kannski bara svona bráðlátur, en ég fer fram á að kjörnir fulltrúar setji af stað vinnu með fulltrúum sveitarfélaga á Suðurlandi um hver þörfin verður næstu áratugina – þar er ég að tala um hvernig göng við komum til með að grafa og hvaða þörfum þau eigi að sinna. Samhliða því þarf að fara í vinnu til að koma með endurskoðaðar tillögur um stórskipahöfn norðan Eiðis, og horfa til þess hvaða nýju tækifæri vegtengingar um göng eiga eftir að skapa.

Ég vona að þið, kjörnir bæjarfulltrúar, veljið gott fólk í þessa vinnu, því nú er tækifærið – hvernig ætlum við að móta framtíðina? Það eruð þið sem getið sett mark ykkar á afkomu þessa samfélags til framtíðar.

Ég hef sagt það áður og segi það enn: hættið að horfa á framtíðina út frá nútíðinni, með öllum þeim vandræðum sem þetta samfélag er að lenda í með því að vera fast í ferjusamgöngum. Ferjusamgöngur eru ekki framtíðin, það eru til aðrar lausnir. Leggið áherslu á að framtíðin verði jarðgöng​ ​ samgöngur allan sólarhringinn, alla daga ársins.

 

Hallgrímur Rögnvaldsson

 

Hugmynd af stórskipahöfn norðan Eiðis.

Nýjustu fréttir

Goslokahátíð náði hápunkti á laugardeginum
Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.