Sléttusöngur og varðeldur á Selfossi
Hinn rómaði sléttusöngur verður sunginn á sléttunni við Gesthús á Selfossi laugardaginn 11. ágúst. Áætlað er að hann hefjist kl. 21:00. Kveiktur verður varðeldur og flugeldasýning haldin þegar skyggja tekur og verður hún í höndum Björgunarfélags Árborgar. Fólk er hvatt til að fjölmenna með hljóðfæri sín og söngbækur og taka vel undir. (meira…)
Næturlífið á Suðurlandi

Þorlákshöfn er pleisið til að vera í þessa helgina með tónlistaruppákomum frá fimmtudegi til sunnudags. (meira…)
25 ára afmælisferð

Þann 15, október nk. eru 25 ár liðin frá stofnun Arsenalklúbbsins á Íslandi en hann var stofnaður á Selfossi af tveimur ungum mönnum. Af þessu tilefni ætla Arsenalaðdáendur af Suðurlandi að fjölmenna í afmælisferð sem farin verður föstudaginn 19. október. (meira…)
Hundafangari óskast

Bláskógabyggð auglýsir eftir hundafangara og samstarfsaðila til reksturs hundabyrgis, fyrir þá hunda sem eru handsamaðir í sveitarfélaginu. Margeir Ingólfsson oddviti segir að verið sé að skerpa línurnar í hundaeftirliti í þéttbýli. (meira…)
Nýtt hverfi við Selfoss

Nýtt íbúahverfi mun rísa í landi Dísarstaða, sunnan Langholts á Selfossi, á næstu árum. Gert er ráð fyrir 374 íbúðum og mun gatnagerð fara af stað á næstu dögum, segir Hannes Þór Ottesen, framkvæmdastjóri Engjalands ehf. sem annast framkvæmdina. (meira…)
Meistaradeildin um helgina

Meistaradeild Olís og Umf. Selfoss í 5. flokki karla verður haldin um helgina á Selfossvelli. Þetta er þriðja árið í röð sem mótið er haldið. Mótsblaðið fylgir með Sunnlenska í þessari viku. (meira…)
Hátíðir um víðan völl

Glatt verður á hjalla víða um Suðurland um helgina en hátíðir eru haldnar bæði í Grímsnes- og Grafningshreppi og í Ölfusinu. (meira…)
Talsvert meira fannst af seiðum frá því í vor en í fyrra
Lokið er tveggja vikna leiðangri á Gæfu VE 11 þar sem farið var á fjögur svæði, Breiðafjörð, Faxaflóa, Vestmannaeyjar – Vík og Ingólfshöfða.Þetta kemur fram í frétt frá Hafrannsóknastofnun. (meira…)
�?jóðhátíðin mun lifa, hún er byggð á 130 ára hefð
Ómar Ragnarsson bloggaði um útihátíðir um verslunarmannahelgina. Á þeim hefur hann sterkar skoðanir og spáir í framtíðina. Hann segir m.a.: Útihátíðir í gamla stílnum hafa hopað, – sú var tíðin að 10 þúsund manns voru í Húsafellsskógi, Atlavík og í Galtalækjarskógi. Galtalækjarhátíðin þraukaði lengst, – fyrsta embættisverk núverandi forseta Íslands var að koma þangað 1996 […]
Fréttir koma út síðdegis á fimmtudaginn

Seinkun verður á útkomu Frétta þessa vikuna vegna Þjóðhátíðarinnar. Koma þær út síðdegis á fimmtudaginn. Blaðið verður hinsvegar stútfullt af Þjóðhátíðarefni. Auk þess verður gluggað í skattskránna, og fleira forvitnilegt. “ (meira…)