Ný Bergey VE lagði af stað frá Póllandi klukkan 11.44

Nýtt skip Bergs-Hugins, Bergey VE 544 lagði af stað frá Póllandi til Íslands klukkan 11.44 í morgun að staðartíma. Er skipið væntanlegt til heimahafnar í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn gangi allt að óskum. (meira…)
340 lendingar á flugvellinum

Flugvélar lentu um 340 sinnum á Vestmannaeyjaflugvelli á mánudag í því skyni að sækja Þjóðhátíðargesti á heimleið. það þýðir að flugvél lenti á um það bil þriggja og hálfrar mínútu fresti. Að sögn starfsmanna flugturnsins gengu flugferðirnar greiðlega fyrir sig. Flogið var frá fimm að morgni til miðnættis á mánudag, en frá sjö að morgni […]
ÍBV fær lettneskan markakóng og rússneskan línumann

ÍBV hefur samið við tvo erlenda leikmenn til þess að styrkja liðið fyrir átökin á komandi leiktíð í úrvalsdeildinni í handknattleik karla. Annar þeirra er lettnesk skytta og heitir hann Janis Grisnavos. Um er að ræða ungan leikmann sem Eyjamenn binda nokkrar vonir við, þar sem Grisnavos varð markakóngur í efstu deild í Lettlandi á […]
�?jóðhátíðarnefnd þakkar fyrir

Þjóðhátíðarnefnd þakkar öllum þeim fjölda sjálfboðaliða og starfsmanna, sem lagt hafa ÍBV lið, á Þjóðhátíð 2007. Það er samdóma álit allra, hvort sem um er að ræða flutningsaðila, lögreglu eða aðra þá, sem að þessu koma, að einstaklega vel hafi til tekist í ár. (meira…)
Skemmtileg stemming á Stokkseyrarbryggju

Góð stemming myndaðist á Stokkseyrarbryggju í frábæru veðri þegar hápunktur fjölskyldudaganna var á sunnudaginn, við varðeld, harmonikuspil og söng. Kvöldið endaði með stór glæsilegri flugeldasýningu á bryggjunni í umsjón Björgunarfélags Árborgar. (meira…)
Hlutur sveitarfélaga

Nú er búið að leggja blessaða álagningaskrána fram og eins og alltaf fer ákveðin umræða í gang. Í þetta skiptið hefur þó nokkur umræða farið fram um það að sveitarfélögin fá engan hlut í fjármagnstekjuskattinum. Auðvitað er það ósanngjarnt að einstaklingar skuli eingöngu borga til ríkisins af sínum tekjum. Aðilar sem greiða eingöngu bfjármagnstekjuskatt nýta […]
Níu stútar staðnir að verki um helgina

Níu ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur um helgina, einn þeirra var að auki grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna. Hraðaksturskærur voru 59 frá föstudegi að miðnætti á mánudag. Umferðareftirlit var mjög mikið um alla sýslu og voru sem dæmi tveir lögreglumenn frá höfuðborgarlögreglunni mikið á ferðinni á splunkunýjum bifhjólum. Einnig var notast við þyrlu […]
Gestafjöldi líklega yfir 10 þúsund

Þegar helgin er gerð upp er ljóst að Þjóðhátíð í ár er með stærri hátíðum og gestafjöldi líklega yfir 10 þúsund. Veður var með besta móti þvert ofan í margar spár og sólin skein flesta dagana.Þetta segir í frétt frá lögreglunni í Vestmannaeyjum sem er ánægð með hvernig til tókst með skemmtanahald helgarinnar. (meira…)
Sinnti ekki stöðvunarmerkjum og hafnaði úti í skurði
Á sunnudagsmorgun ætluðu lögreglumenn á Selfossi að huga að ástandi ökumanns við Flúðir. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum og ók inn á veg að Hvítárholti. Í beygju á blindhæð missti ökumaður stjórn á bifreiðinni í lausamöl og hafnaði úti í skurði. (meira…)
�?kumaður fannst á skurðbotninum

Á laugardagsmorgun var lögreglunni á Selfossi tilkynnt um bifreið á hvolfi utan vegar undir Ingólfsfjalli skammt austan við Kögunarhól. Í ljós kom að bifreiðinni hafði verið ekið austur Suðurlandsveg og ökumaður af ókunnum ástæðum misst stjórn á bifreiðinni á veginum með þeim afleiðingum að hún fór útaf sunnan megin vegarins. (meira…)