Með þeim fjölmennari sem haldin hefur verið
Þjóðhátið 2007 sem nú er að ljúka var með þeim fjölmennari sem haldin hefur verið. Áætlað er að vel yfir tíu þúsund manns hafi verið á kvöldvökunni í gærkvöldi þegar brekkusöngurinn fór fram. Þetta kemur fram í frétt frá lögreglu. (meira…)
Maður með höfuðáverka fluttur með þyrlu til Reykjavíkur

Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. nótt og gistu þrír fangageymslu lögreglunnar fyrir ölvun og óspektir í Herjólfsdal. Mest var að gera hjá lögreglunni þegar komið var undir morgun. (meira…)
Fjölmenni á tónleikum KK og Magga Eiríks

Félagsheimilið á Flúðum var þétt setið á laugardag, þegar tónleikar KK og Magga Eiríks fóru þar fram. Tónleikarnir heppnuðust að mati fólks gríðarlega vel, en hægt er að sjá myndir frá skemmtuninni inn á ljósmyndasíðu Suðurland.is. Sjá myndir. (meira…)
Dalton í �?thlíð

Hljómsveitin Dalton hélt uppi gríðarlegu stuði í Réttinni í Úthlíð á bæði laugardags og sunnudagskvöld. Myndir frá dansleiknum á laugardag, sem komnar eru inn á ljósmyndasíðu Suðurland.is, ættu að tala sínu máli. Sjá myndir. (meira…)
Banaslys á Laugarvatnsvegi
Banaslys varð á Laugarvatnsvegi á móts við bæinn Þóroddsstaði laust eftir klukkan sjö í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi lést ökumaður fólksbíls þar þegar hann missti stjórn á bílnum í beygju. Virðist bíllinn hafa farið nokkrar veltur og ökumaðurinn kastast út úr henni. Lögreglumenn komu á slysstað rétt á eftir. Þeir höfðu áður […]
Setningu �?jóðhátíðar frestað til 16.00

Þjóðhátíðarnefnd hefur tekið ákvörðun um að fresta setningu Þjóðhátíðarinnar, sem átti að fara fram klukkan 14.30. Setningunni verður frestað um eina og hálfa klukkustund eða til klukkan 16.00 og mun dagskrá að öðru leyti halda áætlun. (meira…)
Fékk stangarklemmu í andlitið

Vinnumaður við Hellisheiðarvirkjun var fluttur á slysadeild í Reykjavík með höfuðáverka eftir vinnuslys um klukkan tíu í morgun. (meira…)
Vel gengur að ferja fólk til Eyja

Flug- og siglingar frá Bakka og Þorlákshöfn til Vestmannaeyja hafa gengið vel í dag. Herjólfur lagði af stað um hádegi í dag með fullt skip farþega, eða um 500 manns. Hann fer þrjár ferðir í dag. (meira…)
Vísað úr Herjólfi fyrir drykkjulæti

Tveir ölvaðir karlmenn þurftu að gista í fangageymslu Selfosslögreglu í nótt. Skipstjóri Herjólfs vísaði þeim frá borði, áður en hann leysti landfestar í Þorlákshöfn, vegna dólgsláta. Mennirnir fengu hins vegar að fara með skipinu til Eyja í morgun, eftir að runnið var af þeim. (meira…)
Tvö minniháttar fíkniefnamál í Eyjum í gær

Erilsamt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt. Fangaeymslur voru fullar þar sem aðilar fengu að sofa úr sér ölvunarástand. Tveir 15 ölvaðir drengir stálu sendibifreið og lentu utan vegar. Lögreglumenn náðu þeim á hlaupum frá vettvangi. Þeir neituð að hafa ekið bifreiðinni og voru því vistaðir í fangageymslu. Við yfirheyrslu viðurkenndi annar þeirra að […]