Vel heppnaður risadansleikur

�?að var dúndrandi stuð á fyrsta dansleik sumarsins í Hvíta húsinu á Selfossi á laugardag. Kántrísveitin Klaufar og Jet Black Joe sáu um fjörið en gífurlegt fjölmenni var á staðnum. Hægt er að sjá myndir frá ballinu undir ljósmyndasíðu Suðurland.is. (meira…)

Yfir 20 þúsund gestir

Liðlega 20 þúsund manns sóttu fyrirtækjahátíðina Árborg 2007 sem fram fór á Selfossi um helgina, að söng Björgvins Rúnarssonar skipuleggjanda. Hann segir aðsóknina það framúrskarandi að ákveðið hafi verið um helgina að halda hátíðina aftur að ári liðnu. (meira…)

Ný heimasíða Bjarnareyinga

Tilgangurinn með heimasíðunni er að safna saman á einn stað, upplýsingum um Bjarnarey. Halda til haga sögulegum fróðleik og munnmælum um menn og málefni sem annars myndi týnast. �?á mun þessi vettvangur verða félagslegur fundarstaður okkar á netinu. �?að er von okkar að með tímanum náum við að safna saman umtalsverðu magni af upplýsingum sem […]

�?orsteini Inga afhent Alheimsorkuverðlaunin

Verðlaunin hlaut �?orsteinn fyrir rannsóknir sínar í orkumálum, en þau eru ein æðsta viðurkenning rússneska lýðveldisins fyrir vísindarannsóknir og er ætlað að styðja alþjóðlega samvinnu við lausn brýnustu orkuvandamála samtímans. Mikill metnaður er lagður í verðlaunin sem nefnd hafa verið rússnesku Nóbelsverðlaunin í orkuverkfræði og var gert ráð fyrir að Vladimir Pútín Rússlandsforseti afhenti þau. […]

Frítt í sund í dag

Finna má ítarlegan lista yfir þær laugar sem taka þátt í verkefninu á www.siminn.is, að því er segir í fréttatilkynningu. Auk þess sem boðinn er frír aðgangur í laugarnar verður ýmislegt gert til skemmtunar á laugardaginn. Á milli kl. 13 og 16 munu ungmenni frá sundfélögunum bjóða upp á sundkennslu og standa fyrir ýmsum leikjum […]

Fyrsti sigur ÍBV í sumar staðreynd

Með sigrinum fer ÍBV upp í fimmta sæti með sex stig eftir fjóra leiki en efst er Grindavík með 13 stig eftir fimm leiki. Baráttuleikur Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV var að vonum ánægður með að fyrsti sigurinn væri að baki. �?�?etta var baráttuleikur og ekki góður fótbolti en mikil barátta. Leikurinn var færður yfir á […]

Athugasemdir við hugmyndir um nýjan miðbæ

Mikilvægt er að hafa meiri fjölbreytni í hæð bygginga á svæðinu ístað 5 hæða samfellu. Fjölbreytileiki í húsagerð er engin. Í bæjargarðinum þarf að taka mið af aðliggjandi byggð og hafa húsað hámarki 2 hæðir. Gríðarlegt byggingarmagn er áformað í miðbænum sem er óásættanlegt. Í öllum störfum vinnuhóps um miðbæjarskipulag var ekki verið aðvinna með […]

Álit Hafró ekki í nokkru samræmi við upplifun skipstjórnarmanna á miðunum

Í greinargerð segir að frá því að aflareglan var tekinn upp 1995 hefur veiðin verið nær 30% en 25% samkvæmt aflareglunni. �?Auðvitað bera stjórnvöld, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og Hafrannsóknarstofnun ábyrgð á að veiðistofninn er nú metinn í sögulegu lágmarki og stærð hrygningarstofnsins aðeins um helmingur þess sem talið er að gefi hámarksafrakstur, samkvæmt skýrslu Hafrannsóknarstofnunar. Varað […]

Klaufalegt tap hjá KFS gegn �?gi

�?að var í raun ótrúlegt að fylgjast með hvernig leikur KFS breyttist eftir að Hlynur kom inn á og hann sýndi það í leiknum að hann kann enn að stjórna, bæði leik og sínu liði. �?ess má geta að Hlynur, sem er 43 ára gamall, hefur ekki leikið með KFS síðan 2003 en síðast lék […]

Sumar á Selfossi á laugardag

Aðalatriðið á dagskrá Sumars á Selfossi er morgunmatur sem öllum bæjarbúum og gestum er boðið í. Morgunmaturinn verður nú í bílakjallara Nóatúns og hefst klukkan níu á laugardagsmorgninum. �?Að loknum morgunmat verður áframhaldandi skemmtun frameftir degi. Miðpunkturinn eftir hádegi verður við Vallaskóla þar sem stórsýningin Árborg 2007 fer fram, Bylgjulestin verður á svæðinu, leiktæki fyrir […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.