Hækkun loðnuráðgjafar væntanleg á næstu dögum

Yfirferð rannsóknarskipa í mælingum á stærð loðnustofnsins í janúar síðastliðnum norðvestan við landið var takmörkuð vegna hafíss á svæðinu. Við kynningu á breyttri veiðráðgjöf í kjölfar þess leiðangurs, boðaði Hafrannsóknastofnunin að farið yrði til mælinga á því svæði seinna með það fyrir augum að kanna betur norðvesturmið með tilliti til þess hvort ómældur stofnhluti hafi […]

Hljómey tónlistarhátíð í stofunni heima í Vestmannaeyjum

Þann 28. apríl nk. verður haldin stórglæsileg tónlistarhátíð í Vestmannaeyjum. Hátíðin fer fram á 11 heimilum víðsvegar um miðbæ Vestmannaeyja og 15 atriði koma fram, alls 55 framúrskarandi listamenn. Verkefnið sjálft er óhagnaðardrifið samfélagsverkefni sem unnið er í samvinnu við Ferðamálasamtök Vestmannaeyja, Vestmannaeyjabæ, Herjólf, The Brothers Brewery, Hótel Vestmannaeyjar, Höllina og Westman Islands Inn. Tilgangurinn […]

Þýsk – íslenskur jazz í Eldheimum

Það er ánægjulegt að geta boðið upp á jazz meðal viðburða á stóra gosárinu. Klukkan 17.00 laugardaginn 25. febrúar verða jazztónleikar í Eldheimum. Þar koma fram hinir hálfíslensku jazzistar Lars Duppler, píanó og Stefán Karl Schmid saxófón og klarínett. Þeir eru  margverðlaunaðir og eftirsóttir í þýsku jazzsenunni og nú eru þeir með dagskrá sem þeir […]

Fimmtíu ár frá strandi Gjafars VE 300

Í dag eru liðin 50 ár frá því að Gjafar VE 300 strandaði í innsiglingunni í Grindavík, – mánuði eftir að Heimaeyjargosið hófst. Í blaðinu Eyjafréttum sem kom út 20. mars 2013 ræddi Ómar Garðarsson við vélstjóra skipsins þá Guðjón Rögnvaldsson og Theódór Ólafsson, þar sem þeir lýsa aðdraganda strandsins og því að ekki mátti […]

Sorgarhópur aftur af stað í Landakirkju

Í dag klukkan 18:00 er opinn kynningarfundur í safnaðarheimilinu fyrir sorgarhóp sem verður næstu vikurnar. Vera Björk Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur og sr. Viðar Stefánsson munu leiða starf hópsins og verða einnig með fræðsluerindi um sorgina og hennar mörgu andlit. Allir eru velkomnir á kynningarfundinn, hver svo sem sorgin er eða hversu lengi hún hefur varið (meira…)

Áfram unnið í að bæta afhendingaröryggi

Miðvikudaginn 22. febrúar, um kl. 17:00, verður vinna í flutnings- og dreifikerfi rafmagns sem mun hafa áhrif á einhverja notendur í stutta stund.  Þessi vinna er tengd breytingum sem unnið er að við raforkuflutning frá landi. Einnig gætu orðið rafmagnstruflanir eftir kl. 24:00. Minnum á að ef til verulegra truflana kemur munum við birta upplýsingar  […]

Skerpa á tóbaksbanni

Vestmannaeyjabær áréttar í tilkynningu í vikunni að öll tóbaksnotkun er bönnuð í og við húsnæði sveitarfélagsins. Sérstaklega vill Vestmannaeyjabær minna á bannið í og við Íþróttamistöðina. Bann við tóbaksnotkun á við um allt tóbak og nær til Íþróttamiðstöðvar og lóðar sem tilheyrir henni, sjá tóbaksvarnarlög og reglugerð þar að lútandi. Mest ber á notkun munntóbaks […]

Vestmannaeyjar skora hæst

Vestmannaeyjar skora hæst meðal 20 stærstu sveitarfélaga á Íslandi þegar spurt er um ánægju íbúa með sveitarfélagið sitt sem stað til að búa. Þetta var kynnt rétt í þessu á íbúafundi sem fram fer í Eldheimum. Einnig var til umræðu staða rafmagnsmála í Vestmannaeyjum. Samkvæmt árlegri þjónustukönnun Gallup ríkir almenn ánægja meðal bæjarbúa með þjónustu […]

Bjart og fallegt veður í Eyjum

Klukkan þrjú í dag voru norðan 11 metrar á Stórhöfða og eins stigs hiti samkvæmt vef Veðurstofunnar. Eins og svo oft í norðan áttinni er bjart og fallegt veður og aðeins föl yfir sem sólin hefur náð að höggva í. Addi í London fór á ferðina í dag og tók þessa fallegu mynd sem segir […]

Strákarnir spila í Garðabæ

ÍBV Haukar 3L2A1773

Sextándu umferð Olísdeildar karla verður framhaldið í kvöld með einum leik. ÍBV sækir Stjörnuna heim í TM-höllina klukkan 18. Stjarnan á harma að hefna eftir níu marka tap í fyrri viðureign liðanna í deildinni sem fram fór í Vestmannaeyjum 6. október, 36:27. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.