Flugsamgöngur til og frá Vestmannaeyjum
Flugfélagið Ernir sinnir áæltunarflugi til og frá Vestmannaeyjum alla daga allt árið. Eftir að verkfall starfsmanna Herjólfs hófst hefur aukning eftirspurnar verið mikil og hefur Flugfélagið Ernir flogið fjögur til sjö flug á dag til að mæta aukinni eftirspurn. Sá fréttaflutningur og sú umræða sem verið hefur um að samgöngur við Vestmannaeyjar liggi niðri á ekki rétt á sér og vill félagið koma því á framfæri að flugsamgöngur hafa verið mjög góðar og aukin flug sett upp til að mæta því ástandi sem skapast hefur í Eyjum vegna verkfalls Herjólfs. �?að má því alls ekki gleyma því að þó svo samgöngur sjóleiðina séu hálf lamaðar þá eru mjög góðar flugsamgöngur til og frá Eyjum.
Flugfélagið Ernir ítrekar að áfram mun verða fylgst vel með þróun verkfallsins og kappkostað að þjónusta þá farþega og viðskiptavini sem þurfa á samgöngum við Eyjar að halda. Hægt er að bóka flug á www.ernir.is og einnig hægt að fá upplýsingar um flug og láta setja sig á biðlista í símum 562-2640 og 481-3300.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.