Fjármálaráðherra hefur lagt fram fjárlög ársins 2014 og ráðherrar kynnt útgjöld sinna málaflokka í þinginu. �?að þurfti hugrekki fjármálaráðherrans til að skila hallalausum fjárlögum, snúa af leið skattpíningar og skila eldri borgurum og öryrkjum til baka skerðingar liðinna ára og lækkun skatta á nauðsynjar barnafjölskyldna . Skilaboð fjárlaganna eru skýr að þessu marki og lítilsháttar lækkun skatta vísar þá leið sem lofað var að fara í kosningunum í vor. Stefnan er tekin og er klár fyrir fólkið og atvinnulífið.