Frátafir í Landeyjahöfn
Herjólfur siglir inn Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Eyjar.net óskaði á dögunum eftir gögnum frá Vegagerðinni er varða sundurliðun á siglingum Herjólfs. Þ.e. í hvaða höfn ferjan sigldi og hverjar séu mögulegar ástæður frátafar.

Vegagerðin stillir tímabilunum þannig upp nú – að hvert tímabil nær frá 1. apríl hvers árs til 31. mars næsta árs. Er þetta gert svo veturinn sé í heild sinni á sama tímabili.

Hér að neðan má sjá frátafirnar undanfarin misseri og mögulegar ástæður frátafar eru tíundaðar þar fyrir neðan. merkilegt er að sjá fram að frá 1. apríl og fram til síðustu áramóta var einungis ófært 3 daga til Landeyjahafnar vegna dýpis, eða í 5% tilvika. Á sama tímabili skrifast 38% frátafa á ölduhæð og/eða vind, en þá voru sigldir 58 dagar til Þorlákshafnar.

Allt skjalið má nálgast hér.

Í ljósi sögunnar

Í skýrslu stýrihóps um hafnargerð í Bakkafjöru sem höfð var að leiðarljósi við ákvarðanatöku um byggingu ferjuhafnar í Bakkafjöru sagði m.a.:

„Siglingastofnun hefur lokið öllum nauðsynlegum frumrannsóknum í Bakkafjöru. Niðurstöður þeirra eru í einu og öllu jákvæðar og styðja fyrri niðurstöður. Mögulegt er að byggja ferjuhöfn í Bakkafjöru og verða frátafir í rekstri vegna veðurs og ölduhæðar um 3,5% tímans og þar af yfir vetrarmánuðina frá nóvember til mars 7–12%. Náttúrufarslegar aðstæður við Bakkafjöruhöfn eru þannig, að dýpi við innsiglingu í höfnina fer aldrei undir ákveðin mörk. Sanddæling vegna viðhalds hafnarinnar verður ekki vandamál og ekki meiri en eðlilegt getur talist.

Ljóst er að þessi viðmið fara víðsfjarri þeim raunveruleika sem við blasir í tölum um nýtingu hafnarinnar.

https://eyjar.net/619-milljonir-i-landeyjahofn-i-fyrra/

https://eyjar.net/fundad-um-samgongur-i-kvold/

 

 

Nýjustu fréttir

Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.