Körfuknattleikslið ÍBV tekur á móti Álftanesi í dag klukkan 12:30 í gamla sal Íþróttamiðstöðvarinnar. Liðin leika saman í A-riðli 2. deildar karla en þetta er í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Eyjamenn tefla fram nokkuð sterku liði í ár eftir að hafa fengið góðan liðsstyrk í sumar. �?á er nýr þjálfari í brúnni hjá Eyjamönnum en það er Grindvíkingurinn Haraldur Jón Jóhannesson. ÍBV var kynnt til leiks í síðasta tölublaði Eyjafrétta og þar er m.a. rætt við Harald.