Nú er handboltavertíðin að hefjast en í dag, klukkan 13:30 tekur kvennalið ÍBV á móti Gróttu í N1 deildinni. ÍBV var fyrir mótið spáð fjórða sætinu, á eftir Val, Fram og Stjörnunni en Gróttu var spáð fimmta sætinu, þannig að leikurinn gæti orðið spennandi.