Eyjamaðurinn Matthías leikur á Orgelsumri í Hallgrímskirkju
Matthías Harðarson

Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2025 stendur nú sem hæst og nú er komið að okkar manni, Matthíasi Harðarsyni, orgelleikara Dómkirkjunnar sem heldur orgeltónleika í kirkjunni laugardaginn 26. júlí nk. kl. 12.00. Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is er aðgangseyrir 2.900 kr.

Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu Hallgrímskirkju þar sem segir um Matthías:

Matthías Harðarson hóf píanónám 10 ára gamall við Tónlistarskólann í Vestmannaeyjum. Meðal kennara hans þar voru þau Gíslína Sól Jónatansdóttir, Guðmundur H. Guðjónsson og Kittý Kovács. Hann lærði einnig á saxófón undir handleiðslu Stefáns Sigurjónssonar. Að loknu miðprófi á píanó hóf Matthías nám á orgel hjá þáverandi organista Landakirkju, Guðmundi H. Guðjónssyni og síðar hjá Kittý Kovács. Árið 2016 lauk Matthías kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og lauk kantorsprófi sem og BA námi við Listaháskóla Íslands 2020. Þar lærði hann orgelleik hjá Birni Steinari Sólbergssyni, kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni og litúrgískanorgelleik hjá Guðný Einarsdóttur, Eyþóri Inga Jónssyni og Láru Bryndísi Eggertsdóttur. Samhliða orgelnáminu lagði Matthías stund á Vélstjórn og útskrifaðist sem Vélfræðingur árið 2017. Matthías hefur lokið mastersnámi í kirkjutónlist við konunglega tónlistarháskólann í Árósum. Undir leiðsögn Kristian Krogsøe, Lars Rosenlund Nørremark og Ulrik Spang-Hanssen. Matthías tók nýlega við stöðu organista við Dómkirkjuna í Reykjavík.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Grindavík
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
Herjólfur III í prufusiglingu á miðvikudag
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.