Síðasti dagskrárliður Sjómannadagsins hefst klukkan 17:00 á Hásteinsvelli þegar ÍBV tekur á móti Fylki í 6. umferð Pepsídeildarinnar. Í liði Fylkis má finna nokkur kunnugleg andlis og fremstur í flokki fer þar markaskorarinn mikli Tryggvi Guðmundsson. Auk hans er Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson, sem lék eitt sinn með ÍBV, í Fylkisliðinu en Finnur Ólafsson, annar fyrrum leikmaður ÍBV er frá vegna meiðsla.