Gleðistund gúanómanna
27. nóvember, 2019

Bakkar með sviðum og meðlæti komið á borð, spenna og eftirvænting áþreifanleg. Svo var merki gefið og menn tóku til matar síns af krafti.

Árleg sviðaveisla hafin í fiskimjölsverksmiðju Vinnslustöðvarinnar sem svo heitir formlega og hátíðlega en kallast einfaldlega „bræðslan“ eða „gúanóið“ manna á meðal.

Upphaflega var það víst fiskúrgangurinn sem kallaðist gúanó, hráefnið í mjöl eða lýsi. Spekingar telja að orðið hafi borist hingað úr norsku eða dönsku en sé ættað úr máli indíána í Perú!

Svo yfirfærðist hugtakið á sjálfa starfsemina, fiskimjölsverksmiðjurnar. Það er allt önnur saga og hana bar aldrei á góma í sviðaveislunni í gúanóinu í Eyjum. Allt aðrar sögur, meira krassandi og mun nærtækari flugu þar fram og til baka. Fæstar þeirra prenthæfar og engar tengdar indíánum í fjarlægum heimshornum.

Sviðaveislan á sér áratuga langa sögu í bræðslunni, Óskar Valtýsson man tímanna tvenna á þessum vinnustað frá því fyrir gos. Hann segir að þá þegar hafi þessi hefð verið komin á.

Seinni tíma viðbót er golfmót gúanósins. Það var háð í blíðskaparveðri á golfvellinum og verðlaun afhent í veislunni um kvöldið. Eitthvað annað en í fyrra þegar varla var hundi út sigandi veisludaginn en menn kláruðu samt hringinn.

Fyrirkomulagið er þannig að saman spila tveir og tveir, annar reyndur en hinn óreyndur. Sigurvegarar voru Andrés og Hlynur á 32 höggum, sem er þremur höggunum undir pari. Það er  sviðaveislumet og skráð á söguspjöld.

Upphaflega suðu gúanókarlar sviðin heima, komu með í vinnuna ásamt drykkjarföngum og lögðu í púkk. Svo hófst veisla.

Næsta stig í þróuninni var að starfsmennirnir suðu sviðin á vinnustaðnum og borðuðu svo. Siggi Friðbjörns, fyrrverandi verksmiðjustjóri, útvegaði nokkrum sinnum alvöru sauðahausa úr kaupfélagi af Austurlandi og þeir fóru afar vel í Eyjakarlana.

Kaupfélagið kunni hins vegar ekki að rukka fyrir sviðapokana og fór á hausinn. Það segja að minnsta kosti áreiðanlegir heimildarmenn í hópi gúanókarla og þá er það rétt. Þeir ljúga engu. Aldrei.

Eitthvað dofnaði yfir sviðaveislumálum í bræðslunni um tíma. Það líkaði ekki framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar enda er Binni einn sannkristnasti sviðaunnandi sem þekkist í Vestmannaeyjum. Því kynnist Unnar Hólm Ólafsson vel þegar hann var ráðinn til  fiskimjölsverksmiðjunnar árið 2015.

„Starfið var kynnt mér og ég kallaður í viðtal hjá framkvæmdastjóra VSV. Eins og nærri má geta fór ég þveginn, strokinn og uppáklæddur á vettvang og bjó mig undir rökræður um starfsemi verksmiðjunnar, kaup og kjör. Binni byrjaði hins vegar á því að leggja þunga áherslu á að nauðsynlegt væri að hressa upp á sviðaveislurnar og sjá til þess að myndarlega yrði að þeim staðið á allan hátt. Honum voru sviðin langefst í huga.

Ég hef reynt að standa mig í stykkinu í verksmiðjunni og vanda mig sérstaklega við haustfagnaðinn og sviðin. Binni mætir alltaf og dvelur lengi við kjammafötin. Það hlýtur að þýða að þetta sé allt í góðu lagi hjá okkur.“

Myndaveisla: Golf og sviðaát!  

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst