Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Arden La-Rose. Mynd/ÍBV knattspyrna

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við Arden La-Rose, 23 ára markmann frá Kanada-Guyana, um að leika með kvennaliðinu á næstu leiktíð. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.

,,Hún spilaði með Ohio State Buckeyes en samhliða fótboltanum stundaði hún frjálsar íþróttir og þótti ansi góður hlaupari. Arden kemur einnig með reynslu úr yngri landsliðum Guyana. Arden spilaði sinn fyrsta leik með ÍBV á móti Keflavík sama dag og hún kom til landsins. Þrátt fyrir langt ferðalag og vott af stressi stóð hún sig með prýði” segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að Arden vilji koma á framfæri að það sé heiður að byrja atvinnumannaferilinn með félagi sem hefur sögu og metnað eins og ÍBV.  Hún segir að fótboltamenningin á Íslandi sér ótrúleg og að samfélagið hér í Eyjum hafi tekið henni mjög vel. Arden segist ekki geta beðið eftir að komast út á Hásteinsvöll og sýna hvað í henni býr fyrir liðið og stuðningsmenn þess. 

 

 

Nýjustu fréttir

Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri
Skipaumferð setti svip á höfnina í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.